Réttur


Réttur - 01.10.1974, Page 16

Réttur - 01.10.1974, Page 16
ræður. Krefjumst vér þá af öðrum málfrelsi fyrir okkur, til þess að aínema það svo sjálf- ir í eigin röðum?" — Svo skrifaði Engels forðum í frægu bréfi til Danans Gerson Trier (18. des. 1889). Og kommúnistaflokkar Vesturlanda hafa nú tekið af öll tvímæli um afstöðu sína í þessum málum. — Hræðileg misnotkun ríkisvaldsins líka eftir að það er komið í hendur sósíalista, er einnig slík við- vörun til verkalýðs Vesturlanda um nauðsyn félagsfrelsis og málfrelsis, einnig eftir valda- töku alþýðu, að hún mun ekki gleymast. Sósíalismi Vesturlanda, sem sjálfur hefur átt slíka snillinga sem Bernard Shaw, Anatole France og Bertold Brecht, mun sjá til þess að andlegt frelsi verði ekki í fjötra keyrt, þegar honum hefur tekist að vinna bug á verstu auðdrottnum í löndum sínum. Sá leiðtogi sósíalismans í Vestur-Evrópu, sem sérstaklega hefur mótað sjálfstæða stefnu á síðustu áratugum er ítalski komm- únistaforinginn Togliatti. Hann dó fyrir 10 árum, 1964, og lét þá eftir sig minnisblöð með hugleiðingum sínum um þessi vanda- mál öll, þar með einnig um það, sem aflaga fór í Sovétríkjunum. (Þær hugleiðingar hans voru prentaðar í Rétti 1964 bls. 235—247). Flokkar sósíalista á Vesturlöndum geta enn margt af Togliatti lært. En sósíalistahreyfing Vesturlanda nær ekki því valdi og forustu í þióðfélögunum, sem hún þarf, þótt hún sjálf standi sameinuð. Hún verður að vinna til fylgis við sig þorra þeirra millistétta auðvaldsskipulagsins, sem ýmist hafa aukist eða minnkað við þróun þess. Forðum var bandalagið við bændastétt- ina höfuðatriðið og vissulega er það enn nauðsynlegt að ná samstarfi við vinnandi bændur þessara landa. En allt útlit er fyrir að Efnahagsbandalagið verði langt komið með að eyða bændastéttinni í flestum lönd- um þess, áður en sósíalismi sigrar í Vestur- Togliatti löndum (Sbr. Mansholt-áætlunina), eins og Bandaríkjaauðvaldið er þegar að miklu leyti búið að útrýma bændastéttinni hjá sér. Verkalýður Vesturlanda mun því jafnt verða að vinna til bandalags við sig þær millistéttir, sem fer fækkandi sökum áhrifa auðdrottnanna, — þ.e. bændur, handverks- menn, smáatvinnurekendur, smákaupmenn o. s. frv., — sem og hinar, er vaxa, svo sem hverskonar sjálfstæða starfsmenn þjónustu- fyrirtækja sem og „einyrkja" eins og lækna, verkfræðinga o. fl. I höfuðatriðum fara hags- munir verkamanna og þessara millistétta saman. Sameiginlegur óvinur er hringavald- ið. Og það þarf að einangra og sigra. Til þess þarf, auk alls annars, gerbreytingu á valdi verklýðshreyfingarinnar yfir blöðum og slíkum fjölmiðlum, því þar drottna nú litlar klíkur auðhringavaldsins og móta hugi meirihluta þjóðanna. Það er ekki nóg fyrir sósíalistíska verklýðshreyfingu að móta rétta stefnu. Hún verður líka að kynna hana með svo frábærum og víðsýnum hætti að hún vinni meirihluta þjóðanna til fylgis við hana. 208

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.