Réttur


Réttur - 01.10.1974, Qupperneq 22

Réttur - 01.10.1974, Qupperneq 22
sína undir mikil umskipti í Evrópu og gera sér Ijóst að Bandaríkjamenn geta ekki hindr- að þau. Hitt er ljóst að bylting þessi mun taka langan tíma og hættur munu felast í hverju spori. VI. Barist á púðurtunnu Sú hægfara, lýðræðislega, sósíalistíska bylting, sem hugsanlega gerist í Vestur- Evrópu á næstu áratugum, verður í eðli sínu ólík þeim alþýðubyltingum, sem hingað til hafa orðið, er verkamenn og bændur börðust til lífs og friðar: gegn því að láta yfirstéttir fórna sér sem sláturfé á vígvelli og fyrir brauði og jörð, til að lifa á. Það mun í miklu ríkara mæli en þá verða um að ræða vísvit- andi, skipulagða valdatöku sósíalistískt menntaðrar og samtaka-þjálfaðrar verklýðs- stéttar í órofa bandalagi við menntamenn og millistéttir. Og það verða ekki aðeins stétt- arhagsmunir og frelsisþrá alþýðu, sem setja mark sitt á byltingu þá. Ríkur þáttur í stefnu þeirra alþýðustétta, er völdin taka, verður og að varðveita jörðina og mannkyn hennar frá eyðingu af hálfu gráðugs auðvalds, sem spillir umhverfinu, tæmir hráefnalindir og stofnar heimi í hættu með atomsprengjum. Það alþýðuafl, sem þá tæki að móta stefnu vestrænna Evrópu-þjóða og komist hefur til valda í baráttu við eigin auðhringavald, myndi sýna alþýðu þriðja heimsins fullan skilning og samstöðu, aðstoða hana í hví- vetna við að vinna bug á hungri og skorti. Frelsi nýlendna Portúgal er bara byrjun á slíkri þróun. Hjá þeim þessara þjóða, sem þegar Iiafa búið við „velferðar”-þjóðfélag í auðvalds- skipulagi, þarf líka hugtak „allsnægtanna", sem um er dreymt í framtíðardraumi sósíal- ismans, að breytast: Allsnægtir — það er ekki ótal bílar og hverskyns bruðl fyrir hverja fjölskyldu — heldur meðalhóf hins frjálsa, þroskaða manns, sem veit að auð- lindir jarðar eru takmarkaðar og að öll jarð- arbörn eiga rétt til lífs, svo hófsamleg notk- un gæðanna er boðorð lífsins en ekki tryllt lífsgæðakapphlaup og vitfirrmr vígbúnaður. Skáldið góða kvað forðum daga: „Lífsnautn- in frjóa, alefling andans og athöfn þötf." I þeim anda mun og sú alþýða mótast, er kemur út úr þeirri orrahríð, sem hér er framundan. Þótt flokkar alþýðunnar muni allt gera til þess að þróun þessi megi verða friðsam- leg, — hægfara bylting í stað borgarastyrj- alda, — þá mun auðhringavaldið einskis láta ófreistað til að egna til blóðugra átaka og gagnbyltingar. Og það fær nóg af fasist- um í lið með sér að vanda Það er barist á púðurmnnu — og í þema skipti er það áhugamál alþýðu að hún verði eigi sprengd í loft upp. Þegar svo stendur á gæm jafnvel ofstækisfullir áhangendur sósíal- alismans unnið þau skemmdarverk, sem auð- valdinu nýtmst, því miður. Við skulum vona að flokkar sósíalismans, kommúnistar sem sósíaldemókratar og banda- menn þeirra beri gæfu til að leiða þessa bylt- ingu alþýðu gegn auðvaldskreppu og fasista- hætm til sigurs. Þá yrði þróun sósíalismans í Evrópu á síðustu áramgum 20. aldar eftir rússnesku og kínversku byltingarnar ekki ólík friðsamlegri valdatöku borgarastéttar- 214
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.