Réttur


Réttur - 01.10.1974, Qupperneq 34

Réttur - 01.10.1974, Qupperneq 34
ríkin forustu fyrir þeim ríkjum, sem fylgja þessu sjónarmiði. Mál þetta var mikið rætt á ráðstefnunni og stundum af verulegum hita, en ekki verður sagt að mikið hafi þok- ast í samkomulagsátt. Meginverkefni þriðju nefndar voru að fjalla um alþjóðareglur varðandi mengun- armál og vísindalegar rannsóknir á hafi og hafsbotni. Töluverður ágreiningur er enn um fyrir- komulag og framkvæmd mengunarvarna. skiptast ríki þar aðallega í tvo hópa. Ann- arsvegar eru þróunarlöndin og allmörg strandríki (Island þar á meðal), sem berjast fyrir ótvíræðri mengunarlögsögu og tiltölu- lega miklum rétti strandríkja innan hennar. A öndverðum meiði eru flest siglingaríki, sem telja óæskilegt að veita strandríkjum slíkan rétt, þar eð frjálsum siglingum kunni að stafa hætta af. Siglingaveldin vilja ekki heimila strandríki að framfylgja alþjóðaregl- um um varnir gegn mengun af völdum skipa, heldur skuli það vera heimaríki skips, sem hafi slíkt eftirlit með höndum. Það telja flest strandríki allskostar ófullnægjandi og raunar fráleitt. Um sjálfa mengunarlögsöguna er hins- vegar ekki deilt lengur. Flest ríki virðast geta fellt sig við að hún verði að víðátm hin sama og 200 mílna auðlindalögsagan. Við íslensku fulltrúarnir höfum lagt áherslu á, að tryggja verði rétt strandríkis innan meng- unarlögsögunnar til þess að setja reglur um skipaferðir og siglingar, og jafnframt sé það strandríkið sem hafi rétt til að framfylgja þessum reglum og koma fram refsingum, ef mengunarlög strandríkis hafa verið brotin. Enn skortir nokkuð á að samkomulag hafi náðst um þessi atriði. En töluvert þokaðist í áttina á Caracas-ráðstefnunni, og er ekki ólíklegt, að fundið verði nokkurn veginn eðlilegt jafnvægi milli þeirra tvennskonar hagsmuna, sem þarna er um að ræða, réttar og nauðsynjar strandríkis til að vernda fiski- stofna og strendur gegn mengun, og þess sjónarmiðs að hindra sem minnst frjálsar siglingar með óþarfa flóknu kerfi mengun- arreglna. Ekki gætir teljandi ágreinings um stjórn og framkvæmd vísindalegra rannsókna í land- helgi strandríkja. Oðru máli gegnir um auð- lindasvæðið og úthafið. Þar eru skoðanir enn mjög skiptar milli iðnvelda annars vegar og þeirra ríkja hins vegar, sem halda fram rétti strandríkja til víðtækrar lögsögu í þessum málum á auðlindasvæðinu. Leggja síðar- nefndu ríkin áherslu á, að vísindalegar rann- sóknir séu nátengdar hagnýtingu þeirra auð- æfa, sem á auðlindasvæðinu kunna að vera. I sambandi við mörg helstu mál, sem ráð- stefnan fjallaði um, er alvarlegasta ágrein- ingsefnið það, hvaða aðili eigi að hafa síð- asta orðið um framkvæmd þeirra alþjóða- laga og reglna, sem settar kunna að verða. A það að vera strandríkið, eða eiga það að vera svæðastofnanir, alþjóðastofnanir og að lokum alþjóðadómstóll? Dómur öldunganna í Haag í máli Breta og Vestur-Þjóðverja gégn okkur Islendingum, sem upp var kveðinn meðan ráðstefnan stóð sem hæst, vakti þar mikla athygli og umtal. Var auðheyrt, eink- um á fulltrúum þróunarlanda, að þeim fannst dómurinn líkastur grafarraust frá horfinni tíð. Er óhætt að fullyrða, að áhrif hafði hann einkum í þá átt að gera mörg strandríki enn- þá andvígari því en áður að hlíta úrskurði alþjóðlegs gerðardóms, sem skipaður yrði að verulegu leyti lögspekingum með forneskju- legan hugsunarhátt nýlendudrottnara. VI. Ekki var við því að búast, að þinghaldið í Caracas leiddi til endanlegrar niðurstöðu, 226
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.