Réttur


Réttur - 01.10.1974, Blaðsíða 44

Réttur - 01.10.1974, Blaðsíða 44
En sumarið 1939 kom Stauning, formaður danska sósíaldemókrataflokksins, í heimsókn til Islands. Dansk'r kratar voru andvígir lýðveldisstofnun á Islandi. Og hægri foringjar Alþýðuflokksins voru ætið leiðitamir dönskum krötum. Formaður Alþýðu- flokksins lýsti yfir því við Stauning að af hálfu Alþýðuflokksins væri ekkert fastþundið um lýð- veldisstofnun! Og Stauning hélt ánægður heim, tilkynnti í Danmörku að það væru bara Jónas frá Hriflu og kommúnistar, sem vildu stofna lýðveldi á Islandi! — Þannig hraktist hægri forustan í ístöðu- leysi sínu frá nýsamþykktu stefnumáli. I „þjóðstjórn'nni" (1939—42), afturhaldssömustu stjórn, sem setið hefur að völdum á Islandi, lét hægri forusta Alþýðuflokksins hafa s'g út í allar þær misgerðir, er einkenndu feril þessarar stjórn- ar. Stefán Jóh. formaður flokksins, stóð m.a.s. með Jónasi frá Hriflu í þeim aðgerðum gegn rót- tækum skáldum og listamönnum, sem frægastar eru að endemum. Frjálslyndir menn eins og Vil- mundur Jónsson, Árni frá Múla o. fl. risu hinsvegar upp gegn verstu ofsóknunum og sumar tókst að hindra, öðrum var hnekkt um siðir. Sumarið 1941 sagði Vilmundur af sér þing- mennsku. Var þá hinn siðasti af gömlu v'nstri for- ingjunum í Alþýðuflokknum kominn út úr áhrifa- stöðum, Finnbogi Rútur hafði hins vegar alveg dregið sig í hlé, er flokkurinn fór í þjóðstjórnina, þótt nafn hans stæði áfram á Alþýðublaðinu um hríð. -- Eftir þetta þekkti kommúnistahatur flokksins engin bönd.“> Með öllum afturhalds- og kúgunaraðgerðum þjóð- stjórnarinnar fjarlægðist hægri forusta Alþýðu- flokksins verkalýðssamtökin meir og meir. Þegar Sósíalistaflokkurinn und rbjó verklýðsfélögin til baráttu eftir erfiðu átökin í janúar 1941, áleit þjóð- stjórnin sér enn allt óhætt. Stefán Jóh. Stefánsson, ráðherra Alþýðuflokksins sagði þá í þingræðu 24. okt. 1941: ,,Mér er kunnugt um það að það er engin sérstök hreyfing i þá átt að segja upp samningum með það fyrir augum að hækka grunn- kaup'ð .... Engin yfirvofandi hætta sýnist á því að slíkt skelli á." — Og þá var hann formaður Alþýðusambandsins! En þegar sósíalistar höfðu tekið forustuna í mikilvægustu fagfélögunum og þau hófu í ársbyrj- un 1942 verkföllin, þá svaraði þjóðstjórnin með gerðardómslögunum alræmdu. Þá var einnig hægri forustu Alþýðuflokksins nóg boðið. Stefán Jóh. fór úr ríkisstjórninni. Þegar Sósíalistaflokkurinn svo skipulagði skæruhernað nn stóðu verkamenn þar saman sem stétt — og sigruðu. Og saman stóðu verkamenn verklýðsflokkanna í Dagsbrúnarkosning- unum i febr. 1942 og skópu þá róttæku stjórn, sem siðan hefur einkennt Dagsbrún. Saman stóðu þeir síðan að stjórnarmyndun í Alþýðusambandi Islands, þar sem Sósíalistaflokkurinn nú hafði raunverulega meirhluta, þegar loks var kosið lýðræðislegum kosningum þar eftir 12 ára einræði. Saman hrundu á sama árinu: gerðardómslögin, þjóðstjórnin og einræðið i A.S.I. Tvennar þingkosn'ngar og stjórnarskrárbreyting 1942 sýndu nú hver gerbreyting var orðin á hlut- föllum: Sósíalistaflokkurinn kom í haustkosningun- um að 10 þingmönnum (K.F.I. 1937: 3 þm.) með 18,5% atkvæða, (K.F.I. 1937: 8,5%), en hægri forusta Alþýðuflokksins uppskar eins og hún hafði sáð: fékk 7 þingmenn og 14,2% atkv. (1937: 8 þm. 19%). Alþýðuflokkurinn hafði nú tapað þriðjungi þess fylgis, er hann hafði 1934 (þá 21,7%). TÆKIFÆRI GEFST Haustið 1944 fær Alþýðuflokkurinn aftur tækifæri til þess að vinna upp það traust hjá alþýðu, er hann hafði glatað. Honum býðst möguleiki á að taka þátt í ríkisstjórn fI að framkvæma þá stór- huga nýsköpunaráætlun, sem Sósíalistaflokkurinn setur fram: Nýsköpun alls framleiðslugrundvallar íslensks þjóðfélags og að undirbyggja þannig stór- bætta lífsafkomu alþýðu. Þegar Framsókn skarst úr leik í umræðum fjögra flokkanna, af því hún krafðist 10% launalækkunar hjá verkamönnum, taldi forusta hennar sig hafa loforð fyrir því frá formanni Alþýðuflokksins að sá flokkur myndaði ekki stjórn með ,,kommúnist- um og íhaldi". En Framsókn bauð þá samdægurs, 3. okt., Sjálfstæðisflokknum stjórnarmyndun um launalækkun hjá verkamönnum. Því tilboði var ekki tekið. Hinir flokkarnir héldu áfram samningaum- leitunum. En forusta Alþýðuflokksins var sundurleit, tvíráð og óákveðin. Þótt þingflokkurinn væri yfirleitt á hægri sveif, þá var 25 manna miðstjórn ákvörðunar- valdið og mjög skiptar skoðanir. Sósíafstaflokkurinn stóð hins vegar heilsteypt- ur að nýsköpunartillögunum, raunsær og hleypi- dómalaus, ékveðinn í að mynda ríkisstjórn einmitt 236
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.