Réttur


Réttur - 01.10.1974, Qupperneq 59

Réttur - 01.10.1974, Qupperneq 59
borgaraflokkarnir blekkja þjóðina til að fylgja. Samdráttur og kauplækkun Þegar þetta er skrifað eru rétt rúmir tveir mánuðir liðnir frá því að núverandi ríkis- stjórn íhaldsins og Framsóknar komst til valda. Allt frá sínum fyrsta starfsdegi hefur ríkisstjórnin haft í frammi allskonar tilburði til þess að skerða kjör alþýðufólksins. Verður hér rakið hvað gerst hefur í þá átt í megin- atriðum frá því að stjórnin var mynduð: 22. ágúst: Þegar stjórnin var í burðar- liðnum ákváðu stjórnarflokkarnir að hækka landbúnaðarvöruverð um 7,7 — 22,5% án þess að það væri að nokkru bætt aftur. 30. ágúst: Þegar stjórnin hafði verið mynd- uð var tilkynnt yfir 20% hækkun á erlend- um gjaldeyri eða 17% gengislækkun. Doll- arinn stóð þá í tæplega 119 kr. Sama dag var tekið fyrir á alþingi nýtt stjórnarfrumvarp um að söluskattur hækk- aði í 19%, eða úr 17% í 19% af útseldri vöru og þjónustu. Þetta hafði í för með sér aukna skattheimtu upp á um 1800 milj. kr. á ári. En með gengislækkuninni voru fluttar til í þjóðfélaginu 5000—6000 milj- kr. Þegar þessar árásaraðgerðir voru komnar fram lýsti miðstjórn ASI því yfir að hún færi fram á það við aðildarfélögin að þau segðu upp öllum kjarasamningum frá og með 1. nóv. Aðgerðir stjórnarvalda á fyrstu 20 valda- dögum hægristjórnarinnar höfðu í för með sér um 15 stiga hækkun á framfærsluvísi- tölunni. Um miðjan september var tilkynnt að verulegar hækkanir yrðu á þjónustugjöldum Reykjavíkur: Rafmagnsverð hækkaði um 30%, hitaveitugjöld um 40,6% og strætis- vagnafargjöld um 56%. Um þetta leyti, í miðjum september, hóf- ust viðræður við verkalýðshreyfinguna. Hóf- ust um svipað leyti fundir í verkalýðsfélög- unum þar sem fjallað var um uppsögn kjara- samninga. 20. september hækkaði landbúnaðarverð enn, í annað sinn á tæpum mánuði. Hækk- unin var að þessu sinni frá 14,8% upp í 134,4%. Þessi aðgerð ein hafði í för með sér 8,3 stiga hækkun framfærsluvísitölunnar. 20. september hélt sjávarútvegsráðherra blaðamannafund og skýrði frá bráðabirgða- lögum í sjávarútvegi. Þær ráðstafanir höfðu það í fyrsta lagi í för með sér að hlutaskipti sjómanna voru skert verulega eða um sem svaraði 1000 milj. kr. á ársgrundvelli. Jafn- framt var fiskverðshækkun fest við 11% og fyrirsjáanlegt er að mjög erfitt verður að manna bátana á vetrarvertíð og hefur þó verið nógu erfitt að mati flestra. Vakti þessi ráðstöfun ríkisstjórnarinnar megna óánægju meðal sjómanna. 24. september voru enn gefin út bráða- birgðalög. I þetta skipti fólu lögin í sér stöðvun kaupgjalds fram á mitt næsta ár, og viðurkenndi ríkisstjórnin sjálf að þau myndu á næstu mánuðum þýða í minnsta lagi skerð- ingu kaupmáttar um 8—8,5% á lægstu laununum. Jafnframt er ljóst af þeirri þróun sem hefur á eftir farið að verðlag leikur lausum hala þannig að launamenn bera verðhækkanir með öllu bótalaust. Þegar þetta lá fyrir hafði ríkisstjórn íhalds- ins og Framsóknar unnið það afrek að rifta með öllu árangri síðustu kjarasamninga í febrúar sl. og meira til. Varð nú ekki að- gert fyrr en fjárlagafrumvarpið kom fram 251
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.