Réttur - 01.01.1977, Blaðsíða 11
Exxon-byggingin í New York.
Valdið bak við forsetann.
Hér er Nelson Rockefeller á bak við Gerald Ford.
250 miljónir dollara í kosningasjóði á þess-
ari öld. — Það er þægilegt fyrir ættina að
hafa ítök beint í báðum flokkunum, t.d. að
eiga máske forsetaefni í Demókrataflokknum
fyrir seinni tímann!
Auk yfirráða yfir Chase Manhattan bank-
anum eru náin tengsl Rockefeller-ættarinnar
við First National City Bank of New York,
(Citicorp). Þessir tveir bankar eru næststærstu
bankar Bandaríkjanna, annar með 312 milj-
óna dollara gróða 1974, hin með 180 milj.
dollara gróða. Eignir þeirra (assets) nema
samanlagt nákvæmlega 100 miljörðum doll.
Það er lærdómsríkt að athuga í þessu sam-
bandi tengslin við höfuð-vopnaframleiðend-
urna, ekki síst þau auðfélög, sem fá aðal-
samningana um vopnaframleiðslu, ekki síst
kjarnorkuvopna. En þau stærstu eru: Gen-
eral Dynamics, Lockheed, Boeing, General
Electric og North American Aviation. Þess
skal um leið getið að í þjónustu þeirra hundr-
að hlutafélaga, er slíka samninga fá, eru
1400 fyrrverandi foringjar úr hernum, þar
á meðal 261 herforingi. Það félag, er stærstu
11