Réttur - 01.01.1977, Blaðsíða 42
einnig um hann og bresku hreyfinguna í ,,Rétti"
1975, einkum bls. 181).
iean Jaurés var þrem árum yngri en Keir Hardie,
varð 1883, 24 ára, prófessor í heimspeki, 1890
sósíalisti og frá 1902 þingmaður til dauðadags.
Verður foringi þingflokks sósíalista og ritstjóri
,,1'Humanité" aðalþlaðs flokksins. Hann var einn af
færustu foringjum II. Internationale og einhver
snjallasti ræðumaður nútímans. Hann reyndi að
hindra að til styrjaldar kæmi 1914, einkum með
því að reyna samninga við þýsku sósíaldemókrat-
ana, en var myrtur 31. júlí 1914 af frönskum þjóð-
remþingsmanni, er síðan (1919) var sýknaður. 1924
var lík Jaurés flutt til „Panthéon" þar sem mestu
menn Frakka eru grafnir, fádæma fjöldi franskra
verkamanna fylgdi síðustu leyfum hans þá.
En þessar tvær hetjur sóslalista I baráttunni gegn
stríðsundirbúningnum voru ekki þær einu af leið-
togunum, sem urðu ofstæki afturhaldsins að bráð.
Karl Liebknecht var lika staddur I Kaupmannna-
höfn um þessar mundir. Hann var forseti Alþjóða-
sambands ungra sósialista, en það hélt 2. þing sitc
I Kaupmannahöfn 4. og 5. september 1910. Þar
hafði Karl Liebknecht framsögu um hernaðarstefn-
una og þar var samþykkt ýtarleg ályktun gegn
stríði og styrjaldarundirþúningi auðvaldsins.* 1*
„Strið gegn striðinu" var eitt kjörorðið, — og Karl
Liebknecht brást ekki I baráttunni, er á hólminn
kom, sem kunnugt er. Nafn hans, ræður hans gegn
heimsstyrjöldinni og barátta hans öll varð öðrum
hvöt, þótt flokkur hans, Sósíaldemokrataflokkurinn
Karl Liebkencht
þýski, brygðist, og Liebknecht, Rósa Luxemburg og
fleiri yrðu að skapa nýjan flokk til baráttunnar.
Þessara þriggja manna, sem nú hafa verið nefnd-
ir minnist Stephan G. allra I hinu stórkostlega
kvæði sínu „Vopnahlé" (1915):
„Hver hafa orðið forlög foringjanna
fáu, þeirra er ekki hafa brugðið
friðarmæli sín, og vildu ei svíkja
sannleikann i voða? Einn’* er myrtur
AnnarO fyrir sömu sök er gerður
svivirðing í eigin hóp og dæmdur,
yfirgefinn rænulaus af raunum
reikar nú sá þriði:l) um grafarbakkann.
V Jean Jaurés — a) Liebknecht — a) Keir Hardie.
Ólafur Friðriksson hefur því augum litið á þingi
þessu ungur að aldri nokkra af þeim leiðtogum,
42