Réttur


Réttur - 01.01.1977, Síða 47

Réttur - 01.01.1977, Síða 47
I FALLGRYFJU HINS FEITA ÞJÓNS? íslensk þjóð hefur oft staðið tæpt í sjálfstæðisbaráttu sinni gegn erlendu valdi. Einnig eftir að hún öðlaðist fullveldi sitt, hafa hætturnar í sífellu vofað yfir. Sjálfstæðið er ekkert öruggt hnoss, áunnið sér til eilifðar. Það verður hvern dag að standa á verði til að varðveita það. Svo hefur það verið hingað til og verður áfram. En það er nauðsyn að þjóð vorri sé Ijóst hve tæpt oft stóð í þeirri frelsisbaráttu, sem háð hefur verið hingað til, — og hve tæpt stendur nú. I. baráttan fyrir sjálfsforræðinu Sagan af sex alda nýlendukúgun brenndi S1g inn í hug þeirrar kynslóðar, sem nú er að hverfa, og gerði henni fært að standa á verði gagnvart þeim hættum, sem yfir Islandi vofðu það sem af er þessari öld. Það verður að segjast þeim kynslóðum til hróss, sem forðum byggðu þetta land, að þótt þær væru neyddar til að taka sér einvaldan konung í Kópavogi 1662 og sæju útþurrkun þjóðar- innar blasa við 1783, þá sukku þær aldrei svo djúpt að innlima landið lögfræðilega í annað ríki. í*að er fyrst eftir að burgeisastétt tekur að myndast á Islandi að sú hætta innlimunarinn- ar verður svo geigvænleg að meirihluti Al- þingis samþykkir innlimun í danska veldið uppkastið — en þjóðin rís upp og kol- fellir það í kosningunum 1908. „Einsdæmið" Skúla dugði þá þjóðinni.1' Fullveldið næst 1918, fyrst ei var því fargað 1908. Það var vafalítið beitt „diplo- matiskum" ráðum á báðar hendur. England, — gammurinn, sem alltaf vofði yfir auðlindum íslands, — varð okkur viss stoð í sjálfstæðisbaráttunni við Dani, — og ætlaði sér vissulega bráðina á eftir, svo sem raun varð á. Engu að síður var rétt að hag- nýta áhrif Englendinga í þágu þeirrar sjálf- stæðisbaráttu, er þá var háð. Það var og Jóni forseta Sigurðssyni Ijóst. Það var nýlega rætt,L,) að samböndum ís- lenska Alþýðuflokksins við danska sósíal- demókrata hefði verið beitt, til að fá þá til að aðstoða 1918, sem og tókst. En máske fylgdi þar böggull skammrifi — og skal þó ekkert fullyrt fyrr en öll kurl koma til grafar. En hinn sameiginlegi borgararéttur var í sjálfu sér stórhætta Islandi — og olli því að tveir þingmenn (Benedikt Sveinsson og Magnús Torfason) voru á móti fullveldis- samningunum. Alþingi reyndi að setja skorð- 47

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.