Réttur - 01.10.1977, Blaðsíða 5
VI.
Það er árátta auðvaldsins að breyta
manngildinu í markaðsgildi, eins og þeir
Marx og Engels skilgreina strax í Komm-
únistaávarpinu 1848.
Það er hin háleita hugsjón sósíalism-
ans, frelsishreyfingar vinnandi stétta
handa og heila, að hindra slíka þróun,
gera manninn frjálsan drottnara jarðar,
en ekki þræl herrastétta eða vöru á mark-
aðstorgi.
Það var hlutverk vinnandi stétta
handa og heila á íslandi — bænda og
menntamanna að heyja sjálfstæðisbarátt-
una gegn danska valdinu, — verkamanna-
stéttin studdi þá, fámenn, rétt að skapast,
en borgarastéttin hafði sig lítt í frammi,
nema þá til stuðnings Dönum, að ör-
fáum einstaklingum undanteknum.
Það verður nú hlutverk íslenskra
sósíalista, íslensks verkafólks og mennta-
manna, vonandi með stuðningi bænda og
millistétta lands vors að varðveita mann-
gildi íslenskrar þjóðar, þegar borgara-
stéttin vill bera það á markaðstorg. Það
var hin sósíalistíska verkalýðshreyfing ís-
lands með bandamönnum sínum, sem
bjargaði Islandi úr helgreipunum, er yfir
vofðu 1945, — umskapaði hið fátæka land
vort í bjargálna, sjálfstætt þjóðfélag með
nýsköpuninni 1944—47, — knúði fram
12 mílna og 50 mílna fiskveiðilandhelgi,
þegar borgarastéttin hafði selt Bretum
og Haag-dómstólnum sjálfdæmið og vald-
ið yfir landhelginni utan 12 mílna 1961,
sem vinstri stjórnin rifti 1971 og ruddi
200 mílunum braut.
Nú hvílir sú skylda á sósíalistískri verk-
lýðshreyfingu íslands, sem gerði lífskjara-
byltinguna 1942 og háð hefur síðan í
35 ár vörn og sókn á því sviði, — að taka
forustuna í baráttunni fyrir manngildi,
sjálfsvirðingu og sjálfstæði þjóðarinnar,
er þorri burgeisanna, sem helst hafa tal-
að um persónufrelsi og sæmd, ætlar að
gerast keyptir jirælar bandarískrar hern-
aðarstefnu.
„Valt er að eiga undir þrælum brauð —
auðvalds-jrjóð er hörmulegast snauð —“
segir Stephan G. Hann þekkti hve snauð
sú Jijóð verður að manngildi og menn-
ingu, er lætur breyta sér í auðvaldsþjóð.
Og íslenskur verkalýður má muna að J:>að
eru amerísk yfirvöld fjármála, sem allt
frá 1947 hafa fyrirskipað íslenskri borg-
arastétt að beita jafnt verðbólgu, gengis-
lækkunum og þrælalögum, til að ræna
kaupgjaldi íslenskra verkamanna og
sparifé almennings. Og vissulega hefur
íslenskt afturhald hlýtt með áfergju.
Það eru því síðustu forvöð að hindra
gerspillta ameríska auðmannastétt í að
brjóta niður manndóm íslendinga með
aðstoð agenta sinna og festa sig í sessi um
ófyrirsjáanlega framtíð. Það er vissulega
tími til kominn að losa land og jrjóð við
þessa yfirkúgara, sem brugga Jojóð vorri
liver vélráðin öðrum verri og nota vald-
hafa íslands sem vélbrúður sínar til glap-
ræðanna.
Frelsun íslands af Jæim klafa erlendra
skulda og útlendra lierstöðva, sem verið
er að fjötra oss æ fastar á, verður að vera
verk hinna vinnandi stétta handa og
heila. Með Jdví að vinna Jrað verk munu
þær stéttir og endanlega frelsa sig sjálfar
undan arðráni eilífrar verðbólgu, ógnun
nýrra þrælalaga — og taka forræði í eigin
landi, gerast sinnar gæfu smiður.
213