Réttur - 01.10.1977, Page 17
ar Hátignar. Landhelgisþjófarnir við
strendur íslands eru Hennar Hátignar.
Þingið og þingheimur eru Hennar Há-
tignar. Og þar sem ég er í þjónustu eins
þingmannsins og félagsskapar, sem er
Hennar Hátignar, þá er minn sanni em-
bættistitill: monstrolog Hennar Hátign-
ar Bretadrottningar. Og starii minn er
skrímslanjósnir, sem yfirvöld íslands
myndu tel ja háskalega landráðastarfsemi,
ef ég ræki þær fyrir Rússa. Hér sást mað-
ur vera með einhverja tilburði til að
mæla breidd á brú, ég held uppi í Borg-
arfirði, fyrir nokkrum árum. Það varð að
blaðamáli og fullyrt, að þar hefðu verið
á ferðinni njósnir fyrir Rússa, því að
maðurinn var talinn vera róttækur. Sann-
leikurinn mun þó ekki hafa verið sak-
næmari en það, að maðurinn var að at-
huga, Iwort brúin væri nógu breið til
þess að aka bílnum, sem hann var í, yfir
hana. En hinu var trúað. Ef ég liefði rek-
ið skrímslarannsóknirnar fyrir Rússa,
myndu öll blöð íhalds og krata og fram-
sóknar hafa öskrað út yfir landið, að ég
stæði fyrir mælingum á dýpt stöðuvatna
til undirbúnings Jdví, að herflugvélar
„heimskommúnismans“ gætu sest á vötn-
in, Jægar þær yfirféllu landið á degi
dómsins. Og því myndi hafa verið trúað.
Þetta kalla íslendingar nú til dags að
„hafa þat er sannara reynist".
Eg hef nú lokið við að taka saman
fyrstu skýrslu mína til félagsins í Lon-
don. Hún er um skrímslið í Grjótár-
vatni. Það er stöðuvatn í fjalladal, um 5
kílómetra norðaustur af prestsetrinu
Staðarhrauni í Mýrasýslu. Þá kynlegu
skepnu liafa allmargir séð í yfirborði
þessa vatns öðru hverju í allt að 90 ár,
síðast, svo að ég viti, vorið 1935, og náð
hef ég tali af þremur glöggum, greindum
og ólygnum sjónarvottum. Þessar rann-
sóknir Hennar Hátignar munu nú fara
að nálgast þig eða eru máski þegar komn-
ar í nálægð við þig. Forseti félagsins segir
sem sé í annari grein sinni um Loch Ness
skrímslið, að þeir viti af skrímsli í vatni
einu í Kanada, en nefnir vatnið ekki. Ég
hef frétt, að Jrað muni vera Manitoba-
vatn.
Ja, hvað á maður að segja um skrímsl-
in? Hvers konar skepnur eru þetta? For
setinn telíir fram þeirri getgátu i ann-
arri grein sinni um Loch Ness skrímslið,
að J:>að hafi dagað Jrarna uppi í vatninu í
lok ísaldar, fyrir tíu þúsund árum, sakir
breytinga, sem þá hefðu orðið á landslagi.
Svona hugarfóstur finnst mér varla fram-
bærilegt fyrir Hennar Hátign, að dýr geti
orðið tíu þúsund ára gamalt, þó að J^að
væri al risaeðlukyni. Ekki er hægt að sjá
af ritgerðinni, að höfundurinn hugsi sér
eftirlegudýrin tvö, karlkyn og kvenkyn,
sem síðan hafa aukið kyn sitt í vatninu,
enda skilst manni, að Jrá hlyti Loch Ness
að vera orðið krökkt af þessum kvikind-
um eftir tíu [júsund ára tímgun.
Jæja, drottinn forði mér frá að blanda
mér frekar í Loch Ness. Grjótárvatn og
nokkur önnur stöðuvötn á voru landi
ættu að vera mér nóg. Ef til vill eru svo
kölluð skrímsli ólík að eðli og uppruna.
En mínum hugmyndum um eðli ís-
lenskra skrímsla held ég leyndum, Jrang-
að til ég lýk skýrslugerðum mínum til
þeirra í London.
Mikið andskoti situr sú meinloka fast í
rússneskum pólitíkusum, að ekkert líf sé
eftir dauðann. Hverjum er slík firra til
gagns? Hverjum til uppörvunar? Nú
kváðu þeir vera farnir að hafa þungar
áhyggjur út af Jrví, að topp vísindamenn
225