Réttur - 01.10.1977, Qupperneq 35
leikinn og reikaði, mátti vart mæla. „Þeir
tóku Knud í morgun" stundi hann upp.
Ég fékk samt ekki að fara heim fyrr en
eftir tíu daga, flýtti mér þá heim, til að
sækja föt handa Knud, því ég hafði heyrt
að það ætti að flytja hann burt.
Það var ægilegt að sjá hann aftur. Þeir
höfðu slitið burt stórar flyksur úr svarta,
þétta hárihu hans. Hann var allur blóð-
ugur. Samt var hann að hughreysta mig,
þetta hefði ekki verið svo bölvað. Hann
sagði mér aldrei hve slæmt það í rauninni
hafði verið. En hermaður gat hann ekki
orðið: þeir höfðu sparkað svo í hann að
nýrun voru stórskemmd.
Nú lítur hann út fyrir að vera frískur,
en ég veit ekki hvort hann er það í raun
og veru“.
Þetta sagði móðir hans hálfu ári áður
en hann dó.
Um haustið fóru alvarleg veikindi að
gera vart við sig. Knútur taldi sjálfur að
þau stöfuðu frá skemmdum þeim í höfði
og annars staðar, er spörk nasistanna ollu,
er hann lá á gólfinu.
Þegar Knud tók við forustu flokksins
var hættan á algerri, langvarandi einangr-
un flokksins mjög mikil, — eins og grein,
sem er í „Víðsjá sýnir. Var það ekki síst
Knud að þakka að flokkurinn loks 1973
fékk aftur fulltrúa á landsþingi Dana eft-
ir að hafa engan átt þar í meir en áratug.
Jafnvel dönsku borgarablöðin viður-
kenndu vinsældir hans og dugnað í bar-
áttunni. „Knud Jespersen startede som
en katastrope, endte som folkekær komm-
unist“ sagði B. T. í fyrirsögninni um and-
lát hans.
Knud bjóst sjálfur við dauða sínum
áður en hann næði háum aldri. í nóvem-
ber 1958 lýsti hann því í „Land og Folk“
hvernig nasistarnir hefðu náð sér 27.
mars 1945, mánuði eftir að Jrau mæðgin-
in höfðu fengið að vita að faðir hans
hefði látist í fangabúðunum í Neúen-
gamme. Rannsóknin á ríkisspítalanum
eftir að Danmörk varð lrjáls, leiddi í ljós
hvernig pyntingarnar höfðu stórskemmt
bæði maga hans og hjarta. En Jrað tók
samt 32 ár fyrir Gestapo að drepa Jrenn-
an hugrakka, fórnfúsa kommúnista.
Knud var baráttumaður góður, alþýð-
legur mjög í allri framkomu sinni, ræðu-
maður snjall og var hann einnig vinsæll
og mikils metinn meðal andstæðinga
sinna á þingi.
Karl Skytte, Jringforseti, sagði m. a.
um hann í stuttri kveðjuræðu í {>ing-
inu: „Við kynntumst Knud Jespersen
sem einhverjum duglegasta ræðumanni
Jringsins og jafnframt sem lirífandi, vin-
gjarnlegum manni, sem naut vinsælda
einnig meðal algerra andstæðinga. Fráfall
hans eftir aðeins fjögurra ára J>ingsetu,
er mikill missir eigi aðeins fyrir flokk
lians, heldur og allt Jringið, J>ar sem hann
hafði áunnið sér virðingu allra“.
Jörgen Jensen 58 ára, sem er J>ing-
maður og formaður sambands bifvéla-
virkja, verður eftirmaður hans sem for-
maður flokksins.
Þeir kveðja nú fleiri og fleiri af fé-
lögunum, jafnt innanlands sem utan, sem
háð hafa baráttuna, meðan hún var hörð-
ust og hættulegust.
Knud Jespersen var einn af þeim, sem
allt frá unga aldri höfðu helgað barátt-
unni fyrir sósíalismanum líf sitt, reiðu-
búinn einnig að fórna öllu, lífinu líka,
fyrir hugsjón sósíalismans. Því er hans
saknað og verður æ minnst af þeirn félög-
um innanlands og utan, sem kynntust
honum og þekktu hann best.
243