Réttur - 01.04.1978, Blaðsíða 52
Jafnframt lögðum við á fyrsta fundin-
um með Alþýðuflokknum áherslu á að
gera ýmsar róttækar breytingar á efna-
hagskerfinu; nú dygðu ekki gömlu íhalds-
úrræðin, nú yrði að fara aðrar leiðir.
Reynslan hefði dæmt gömlu aðgerðirnar
úr leik.
Á þessum fyrsta fundi var og rætt um
vinnubrögð. Var ákveðið að skipta við-
ræðunefndinni í tvo vinnuhópa, þar sem
annar fjallaði um efnahags- og atvinnu-
mál, en hinn um önnur mál. í lok þessa
fyrsta fundar var einnig rætt um utanrík-
ismál. Þar ítrekuðu báðir flokkar afstöðu
sína: Alþýðubandalagið vildi stuðla að
brottför hersins, en Alþýðuflokkurinn
taldi að lierinn ætti að vera áfram í land-
inu „við óbreyttar aðstæður".
Alþýðuflokksmenn tóku vel tillögum
Alþýðubandalagsins í efnahagsmálum,
tillögum um niðurfærslu verðlags og
millifærslu fjármuna. Strax á fyrsta degi
viðræðnanna kom fram af hálfu Alþýðu-
flokksins að hann kysi frekar að Sjálfstæð-
isflokkurinn yrði dreginn til viðræðna
við flokkana tvo en Framsóknarflokkur-
inn. Af hálfu Alþýðubandalagsins kom
hið gagnstæða þegar í stað fram.
Daginn eftir héldu undirnefndirnar
fundi sína árdegis, en síðdegis hófust
fundir viðræðunefndanna í heild, þar
sem mjög almennt var farið yfir málin.
Þar kvaðst Alþýðubandalagið vilja kanna
viðhorf Framsóknar til vinstristjórnar-
viðræðna. Var því tekið sem eðlilegum
viðbrögðum af AlþýðuHokksnHÍnnununi
og var fundum síðan frestað fram yfir
helgi.
Að morgni mánudagsins 10. júlí átti
Lúðvík Jósepsson fund með formanni
Framsóknarflokksins Ólafi Jóhannessyni.
Þar kom fram hjá Ólafi að flokkur hans
væri tilbúinn til þess að taka þátt í við-
ræðum um myndun ríkisstjórnar, vinstri-
stjórnar. Áður hafði Framsókn lýst því
yfir að „sigurvegarar“ kosninganna ættu
að mynda stjórn saman, en Framsókn
vildi veita henni hlutleysi sitt.
Lúðvík skýrði frá þessum viðræðum
við Ólaf á lundi viðræðunefnda Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalagsins síðdegis
mánudaginn 10. júlí Varð það einróma
álit aðilanna að nú væri kominn tími til
þess að líta svo á að könnunarviðræðun-
um væri lokið en unnt að hefja stjórnar-
myndunarviðræður.
Þá lá fyrir að Alþýðubandalagið hafði
liaft frumkvæði að viðræðum við Fram-
sókn og hafði átt viðræður við Alþýðu-
flokkinn. Einhverra hluta vegna ákvað
forseti íslands þó að fela Alþýðuliokkn-
um, Benedikt Gröndal, að reyna að
mynda ríkisstjórn. Dró Þjóðviljinn þá
ályktun að það hlyti að stafa af því að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði gefið í skyn
að hann teldi eðlilegt að Benedikt byrjaði
tilraunir til stjórnarmyndunar. Það var
svo að morgni 13. júlí sem Benedikt
Gröndal var falið að hefja tilraun til
st j órnarmyndunar.
En fyrsta verk Benedikts Gröndals var
að skrifa Alþýðubandalaginu og Sjálf-
stæðisflokknum bréf þar sem hann fór
fram á það að flokkarnir tækju þátt í
stjórnarmyndunarviðræðum ásamt Al-
þýðuflokknum. Bréf Benedikts barst Al-
þýðubandalaginu um níuleytið að kvöldi
þess 13. júlí. Morguninn eftir hófst fund-
ur þingflokks Alþýðubandalagsins þar
sem bréfi Benedikts var svarað og varð
niðurstaða þingmanna flokksins einróma
sú, að hafna viðræðum við íhaldið unr
leið og bent var á að Alþýðubandalagið
teldi rétt að reyna vinstristjórn. „Alþýðu-
124