Réttur


Réttur - 01.08.1979, Síða 1

Réttur - 01.08.1979, Síða 1
iBttnr 62. árgangur 1979 -3. hefti Þetta hefti Réttar var að mestu unnið áður en þingkratar tóku þá afdrifaríku ákvörðun að hætta þátttöku í ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar. Ætlunin var að fjalla að mestu um þá endurskoðun stjórnarsáttmálans er fyrir dyrum stóð og koma fram með jákvæða gagnrýni á störf stjórnarinnar. Beint var spurningum til forystumanna í verkalýðshreyfingunni og Alþýðubandalag- inu um gildi vinstri stjórnarinnar og hvað þyrfti að breytast til að hún stæði undir nafni. En þó stjórnin sé eigi lengur við líði, þá þótti ritstjórn Réttar svörin merkileg heimild um væntingar flokksmanna. Nú styttist óðum í alþingiskosningar og framboð hafa verið birt. Þing- kratar völdu þann kost að setjast í dúkkustjórn upp á náð Sjálfstæðisflokks- ins þegar fyrir kosningar og ýmis teikn eru á lofti um að afturhaldsöflin í íhaldsflokkunum þrem séu með sambræðsluhugmyndir kenndar við ,frjáls- hyggju'1. Sjálfstæðismenn ýmsir og samtök kaupsýslumanna ásamt svart- asta afturhaldinu í atvinnurekendasamtökunum gæla nú við það að kjósend- ur veiti Sjálfstæðisflokknum það mikið fylgi að hann geti valið milli Fram- sóknar og Krata til mismunandi illverka. Ljóst er, að ný öfl hafa tekið að móta „hugmyndafræðilega stefnu" Sjálfstæðisflokksins. Þar ráða nú ferð- inni menn er sækja hugmyndir sínar um aðgerðir í efnahagsmálum til Fried- mans, ráðunauts Pinochets í Chile. Nú boða þeir afturhvarf til ómengaðrar ,,frjálshyggju“ frá því fyrir daga kreppunnar miklu fyrir 50 árum er kenn- ingar liberalista sigldu í strand. Hér á landi er kominn upp hópur aftur- haldssamra kreppuíhaldsmanna. Nú á neyðin á nýjan leik að setjast i sæti skömmtunarstjórans, þó sú neyð verði af öðrum toga en áður. Boðskapur afturhaldsaflanna er sá að skera skuli niður ríkisútgjöld - ríkisbáknið skal burt - og ganga skal milli bols og höfuðs á þeim velferðar- hugmyndum sem verkalýðsstéttin hefur komið í öndvegið á undangengn- um áratugum. Þegar atvinnurekendur og auðvaldspressan hrópar á meira frelsi (undan ríkisáþján!) er það frelsi auðsins sem átt er við. Þegar postul- ar auðmagnsins sverja við frelsi og lýðræði er hætta á ferðum fyrir íslenska alþýðu. Hvað merkir þetta ,,frelsistal“ bandingja markaðshyggjunnar? Þeir vilja í nafni tjáningafrelsis leggja niður ýmsar menningarstofnanir í eigu ríkisins en láta í þess stað veldi peninganna ráða. Ríkið á ekki að keppa við einkaframtakið og því ber að selja öll eða velflest ríkisfyrirtæki á nafn- 13

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.