Réttur


Réttur - 01.08.1980, Síða 22

Réttur - 01.08.1980, Síða 22
verið að fara að vinna með dísilvélar í stað gufuvéla. Margir álíta að hin örtölvustýrðu tæki krefjist annars konar upplags hjá J)ví fólki, sem vinnur með þau, en núverandi tæki, þau verði mun flóknari og því blasi ekkert nema atvinnuleysi við því þegar núverandi tæki verða orðin úrelt og hverfa. Þessi ótti er ástæðulítill, Jrví hið gagnstæða er nær lagi, nefnilega að ein- faldara verði að jafnaði að vinna með hin nýju tæki. Hætta einstaklingsins liggur Jrví miklu frekar hjá honum sjálfum, að hann ríg- haldi í eldri tækni í ótta við hið nýja. Meginþorri fólks mun Jmrfa. að læra ýmislegt nýtt og margir munu þurfa að skipta um starf og hætta verður á at- vinnuleysi ef vinnutíminn verður ekki styttur jafnt og Jrétt í takt við vaxandi tækni, og er þá hætta á því að atvinnu- leysið bitni frekar á fólki, sem komið er yfir miðjan starfsaldur. Því er ekki né>g að stytta vinnutímann, heldur Jrarf að gefa fólki góð tækifæri til að afla sér nýrr- ar starfsþekkingar á fullu kaupi. Lokaorð Ég hef reynt að gefa hér nokkra mynd af örtölvutækninni, rakið aðdraga,nda hennar og þróun, stöðu hennar og mögu- leikum um þessar mundir og á næstu ár- um. Allar horfur eru á að með hjálp hennar megi á 15-20 árum ná svo mikilli framleiðniaukningu í íslenskum at- vinnufyrirtækjum að aðeins þurfi um helming þeirar vinnu sem nú er nauðsyn- leg. Svo byltingarkenndum breytingum gæti fylgt verulegt atvinnuleysi og liörð átök á vinnumarkaðinum, þannig að meiri ógæfa fylgdi breytingunum en gæfa. Hins vegar gæti tæknin fært okkur 40 klukkustunda vinnuviku í reynd á t. d. næstu 10 árum og kannski 30 stnnda vinnuviku 10-15 árum síðar. Vinnusparnaðurinn verður mjög mis- mikill eftir greinum. Uppeldi barna og hjúkrun aldraðra mun t. d. krefjast sömu vinnu, já, við getum kannski sinnt þess- um þáttum enn betur síðar, þegar ör- tölvutæknin hefur losað vinnuafl í öðr- um greinum. í fjölmörgum starfsgrein- um verður stórkostleg fækkun starfsfólks, en áhrifa örtölvutækninnar mun gæta misfljótt í hinum ýmsu greinum. Þessi þróun mun valda mikilli röskun í verka- skiptingu í jrjóðfélaginu. Eigi þjóðin að njóta þeirra kosta, sem hin nýja tækni býður upp á, verða launþegar, atvinnu- rekendur og stjómvöld að gera sér ljósa grein fyrir eðli og möguleikum þessarar tækniþróunar. Án verulegs flutnings vinnuafls milli atvinnugreina, samhliða styttingu vinnutímans getum við ekki notið ]>eirra kosta, sem hin nýja tækni býður upp á. Hér sem víðar mun það sannast, að hver er sinnar gæfu smiður. 150

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.