Réttur


Réttur - 01.08.1980, Side 43

Réttur - 01.08.1980, Side 43
Vigdis Finnbogadóttir forseti ísiands og Svan- hildur Halldórsdóttir kosningastjóri hennar. Rétt er þó að minnast þess að þessi sigur jafnréttisbaráttunnar vinnst — og það naumlega — með atkvæðum þriðj- ungs þjóðarinnar, af því þrír aðrir fram- bjóðendur voru í kjöri, ailir karlmenn. (Tölur er að finna í Innlendri víðsjá). Vakningu kvennadagsins mikla 1975 var ekki svo vel fylgt eftir sem vera skyldi, þó allgott þjóðfélagsrót yrði af. Nú þarf því að læra af fyrri mistökum og fylgja þessum sigri eftir, ekki síst innan stjórnmálaflokkanna og er þar enginn undanskilinn. — Minnast má í þessu sambandi máltækisins forna, þótt önnur merking sé í orðin lögð: „ ... Það er ekki rninni vandi að gæta fengins fjár en afla.“ En þar með skal síst dregið úr gildi þess sigurs, sem jafnréttisbaráttan, hvað konuna snertir vann 29. júní. Um leið og undirstrikað er hvern þátt snjöll framkoma og óhemju atorka frú Vigdísar átti í sigri þessum, þá skal og minnst á að skipulagning kosningarinn- arinnar var með ágætum og það getur ◦Itið á öllu, þegar mjóu munar. Kosn- ingastjóri frú Vigdísar var Svanhildur Halldórsdóttir — og þótt hún kunni að hafa notið góðra manna ráða, þá sést hér enn hvílíkum afburðakröftum kven- þjóð vor býr yfir, ef hún aðeins fær að njóta sín. En rétt er að hyggja hér betur að og kafa dýpra fyrir rætur þess, er gerst hef- ur og gildi þess í víðfeðma, sögulegu samhengi. 171

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.