Réttur


Réttur - 01.04.1981, Page 6

Réttur - 01.04.1981, Page 6
hafði engu að síður mikil samskipti við blaða- mennina og prentarana, einkum á kvöld- vöktunum. Það voru skemmtilegar stundir þar sem iðkaðar voru blátt áfram listrænar orðahnippingar, kannski ekki prenthæfar, en svo minnisstæðar að við sem reyndum geymum þær lengi í hugskoti okkar. Hlátur Magnúsar og gamanmál hans voru smitandi og sterk; grínisti var hann með afbrigðum og fundvís á skoplega hlið flestra tíðinda. Það vildi svo til fyrir röð af tilviljunum sem ekki er efni til að gera grein fyrir hér að ég var ráðinn til verka á Þjóðviljanum í júní- mánuði 1964 og starfaði á blaðinu lengst af síðan sem blaðamaður í allskonar skrifum með Magnúsi Kjartanssyni, en hann lét af starfi við blaðið í júlí 1971. Það var mér mikil gæfa að fá að fylgjast með starfinu á blaðinu á þessum árum undir ritstjórn Sig- urðar Guðmundssonar og Magnúsar. Þrjú aðalefni voru efst á dagskrá stjórnmálabar- áttunnar á þessum árum: í fyrsta lagi barátt- an gegn bandaríska hernum og auknum áhrif- um hans sem birtust á öðru hverju heimili hér í þéttbýlinu með bandaríska hermanna- sjónvarpinu. í öðru lagi var það baráttan gegn inngöngu íslands í Efnahagsbandalagið og baráttan gegn áhrifum alþjóðlegra auð- hringa hér á landi, samningunum við Alu- suisse. í þriðja lagi var það baráttan fyrir bættum lífskjörum allrar alþýðu, sem var at- vinnulaus og landflótta á síðustu árum við- reisnarfélags Alþýðuflokks og Sjálfstæðis- flokks. Hér var því í senn um að ræða bar- áttu fyrir menningarlegu sjálfstæði þjóðar- innar, forræði yfir bjargræðisvegum til lands og sjávar og fyrir tekjuskiptingu al- þýðu í vil, en til dæmis um kjörin skal þess getið að á áratug viðreisnarfélagsins voru lægstu tekjur aldraðra og öryrkja um þriðj- ungur af því sem um er að ræða í dag. í bar- áttunni fyrir efnahagslegu sjálfstæði lands- manna var við harðvítuga andstæðinga að eiga. Það voru sömu öflin sem börðust fyrir því að selja raforku landsmanna á spottprís og fyrir aðild íslands að Efnahagsbandalag- inu. Það voru sörnu aðilar sem beittu sér fyrir nauðungarsamningunum við Breta og Vestur-Þjóðverja í landhelgismálinu, en þeir samningar byggðust á því að landhelgina mætti aðeins færa út með leyfi þessara ríkja — úr 12 sjómílum. Það tókst með öflugu andófi á viðreisnarárunum að koma í veg fyrir aðild íslands að Efnahagsbandalagi Evrópu: „Gegn EBE og ABD” var kosn- ingakjörorð okkar 1963 sem sýnir hve nærri lá að íslendingar yrðu aðilar að Efnahags- bandalagi Evrópu. Þessi mál öll nefni ég vegna þess að þau ber hæst i skrifum Magn- úsar á þessum áratug og árangurinn sýnir að með starfi og upplýsingum við erfiðustu að- stæður er unnt að vinna sigur. Magnús og Lúðvík voru ráðherrar Alþýðubandalagsins í vinstri stjórninni og niðurstaða þeirrar stjórn- ar var sem kunnugt er verulegur árangur á öllum þeim sviðum sem áður voru nefnd: í fyrsta lagi var sagt upp nauðungarsamn- ingunum við Breta og Vestur-Þjóðverja, en uppsögn þeirra var forsenda sigurs í land- helgisdeilunni við útfærslu landhelginnar í 50 og 200 sjómílur. I öðru lagi var stöðvuð innrás erlendra auð- hringa í landið með þeim hætti sem varð í Straumsvik. (Það er íhugunarvert að einmitt þessa dagana er margt af því að koma í ljós sem Magnús Kjartansson benti á er hann var- aði við afleiðingum álsamningsins.) Vinstri- stjórnin beitti sér fyrir alhliða eflingu inn- lendra atvinnuvega og Magnús Kjartansson beitti sér sérstaklega fyrir því sem iðnaðar- ráðherra að íslendingar tækju orkulindirnar í sína notkun, í eigin þágu en ekki erlendra 70

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.