Réttur - 01.10.1981, Side 16
Ronald Reagan
og ragnarök mannkyns
Bandaríkin telja 5% af íbúum heims, en þau taka til sín um
25%, af framleiðslumagni heimsins — ráða yfir auðœfum um
ailan auðvaldsheiminn og í miklu af hinum fornu nýlendum, sem
veita þeim slíkt arðránsvald.
Bretaveldi réð um aldamótin 1900 yfir fjórðungi veraldar. Nú
hafa Bandaríkin gerst arftaki þeirra — og það er örfámenn yfir-
stétt Bandaríkjanna, skipulögð í ríkustu og voldugustu auðhring-
um heims, sem arðrœnir þorra jarðarbúa í umrœddum löndum,
ýmist sem eigandi stórfyrirtœkja þar eða sem lánardrottinn, og
hefur her sinn í þeim til þess að tryggja þar völd sín og yfirstétta
sem eru þeim undirgefnar eða hliðhollar — og til þess að undir-
búa árásir á önnur lönd, sem þessi aðalyfirstétt jarðar vill ná
undir yfirráð sín og arðræna.
Þetta er heimsmyndin, sem menn verða að fara að horfast í
augu við, ef menn œtla að gera sér raunverulega grein fyrir því
hversvegna hinn œgilegi vígbúnaður bandarísku yfirstéttarinnar
er orðinn svo mikill að hann getur tortímt mannkyninu, ef illa
fer.