Réttur - 01.10.1981, Page 25
VIII.
Kapphlaupið við kaupmenn dauðans
Hættan á tortímingu alls mannkyns er nú
þegar yfirvofandi. Hún eykst með hverju
nýju gereyðingarvopni, sem við bætist, —
magnast með vexti liaturs og heimskunnar,
sem erindrekar kaupmanna dauðans vinna
að.
Vér mennirnir stöndum frammi fyrir
hugsanlega ægilegasta — og síðasta — harm-
leik mannkynssögunnar. Það verður að
vekja hjá mannkyninu sjálfu, fjöldanum og
foringjum hans, meðvitundina um þá óskap-
legu ábyrgð, sem á þeim hvílir, að hafa vit og
vald til að afstýra voðanum.
Það þarf dýpri hugsun, meiri virkni og
hatrammari viljastyrk hjá öllum fjöldanum,
miljónum manna um heim allan, ef það á að
vera hægt að afstýra glötun mannkynsins.
Það er auðséð á tillögum Reagans upp á
síðkastið: að undirhúa „lítið atomstríð” í
Evrópu, að liann og bandaríska yfirstéttin
eru hrædd við atomstríð, sem tortímdi þeim
sjálfum ásamt þorra alls mannkyns. Þessir
„heimsdrottnar” — að eigin áliti — álíta
stjórnmálamenn Evrópu slíka fábjána að
þeir samþykki þessháttar sjálfsmorð, til þess
að þóknast „herraþjóðinni”, — gera Evrópu
að geislavirku víti og Bandaríkjaauðvaldið
að drottnara heims.
Menn skulu ekki ætla að bandaríska yfir-
stéttin hafi neinar siðferðilegar hömlur i
þessu efni. Sú yfirstétt hefur á undanförnum
áratugum látið heri sína og CIA — verkfæri
sitt — myrða miljónir manna, sumpart með
aðstoð innlendra yfirstétta viðkomandi
landa: yfir miljón Indiána i Brasilíu, yfir /i
miljón kommúnista í Indonesíu, álíka mann-
fjölda á Timor og 7 ára múgmorð sjálfs
Bandaríkjahers í Víetnam segir hryllilegustu
Mólmælagansa i Amslerdam gejjn ncftrómisprenjijiim.
201