Réttur - 01.10.1981, Síða 29
og aðeins 6% konur skortir þó inikið á að
þarna fáist rétt mynd. Leggur Alþýðubanda-
lagið áherslu á að í þessu efni verði róttæk
breyting í næstu kosningum.
Stefnt skal að því, að konur skipi um
helming sæta á listum Alþýðubandalagsins
við næstu sveitarstjórnarkosningar.
Við alla skipulagningu og uppbyggingu
byggðar, á viðmiðunin að vera fólkið sjálft,
einstaklingar og fjölskyldur. Taka þarf tillit
til þarfa barna og öryggis þeirra og sjá til
þess að félagslegar þjónustustofnanir komi
samhliða.”
Miðstjórnarkjörið og kaflinn í stjórnmála-
ályktuninni mn jafnréttismál sýndu greini-
lega að Alþýðubandalagið endurspeglar vel
hina mikilvægu vitundarvakningu kvenna.
I stjórnmálaályktuninni segir m.a.:
„Alþýðubandalagið leggur höfuðáherslu á
jafnrétti karla og kvenna til starfa og stjórn-
unar í þjóðfélaginu. Til þess að svo megi
verða þarf að leggja áherslu á uppbyggingu
dagvistarstofnana, styttingu vinnutíma og
jafnréttis í launagreiðslum. Tryggja þarf
öllum þegnum þjóðfélagsins öruggt hús-
næði, sem taki mið af þörfum fjölskyldunn-
ar, ungra jafnt sem aldinna.
Stórátak þarf að gera í málefnum fatlaðra,
þó að verulegt verk hafi þar verið unnið. í at-
vinnumálum, húsnæðismálum og ferlimál-
um fatlaðs fólks er enn margt ógert. Fyrir-
byggjandi aðgerðir þarf að auka með því aí
efla vinnuvernd og slysavarnir.
Jafnrétti í lífeyrismálum er baráttumál
flokksins sem fyrr og leggur fundurinn
áherslu á að samtengdu og verðtryggðu líf-
eyriskerfi fyrir alla landsmenn verði komið
á.
Málefni aldraðra eru mikilvægur þáttur í
farsælli afkomu fjölskyldnanna í landinu.
Þá þarf sérstaklega að vinna að því að
leiðrétta misrétti i kjörurn og aðstöðu fólks
sem stafar af búsetu...
...Flokksráðsfundurinn leggur áherslu á
að flokkurinn fylgi hvarvetna fram jafnrétt-
isstefnu í starfi sínu á öllum sviðum og heitir
á flokksfélög að stuðla að sem jafnastri hlut-
deild karla og kvenna í komandi sveitar-
stjórnarkosningum. Alþýðubandalagið telur
brýnt að gerðar verði enn frekari ráðstafanir
til þess að jafna lifskjörin og að áfram verði
haldið á þeirri braut að knýja fram félagsleg
réttindamál launafólks.
205