Réttur - 01.10.1981, Side 35
Bíiro) miðstjórnar sovéska Kommúnista-
flokksins liggja ekki á glámbekk og þótt þar
kunni stundum að vera hart deilt um ýmsar
ráðstafanir, þá er hafður sá lýðræðislegi
háttur á að meirihlutinn ræður, en hinsvegar
ríkir sá agi og eining út á við að sjaldnast
vitnast hverjir kynnu að hafa verið í minni-
hluta. Ég ætla því að minnast á eina slíka að-
gerð, sem ég hef sjálfur deilt á í þessu riti,
sökum þess að höfundur einnar ævisægu
Breschnews, Michael Morozow, Rússi að
uppruna, en mikill andstæðingur Sovét-
stjórnarinnar, starfandi í Vestur-Þýskalandi,
staðhæfir í riti þessu, að innrásin í Tékkó-
slóvakíu 1968 hafi verið samþykkt i frant-
kvæmdaráðinu með eins atkvæðis mun, 6
gegn 5,'Og meðal þeirra, er atkvæði greiddu
gegn hafi verið Suslow ásamt m.a. Kosygin
og Podgorny, forseta og forsætisráðherra.
Byggir Morozow staðhæfingu sína á því að
Husak, forseti Tékkóslóvakíu, hafi veitt þeim
sex æðsta heiðurstákn ríkisins, en hinum
fimm ekki. — En hvað sem vera kann um
slíkt, verður ei sannreynt nú, en ef til vill
leiðir sagan það í ljós einhvern tíma seint og
síðar meir.
Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna mun
nteta Suslow sem einn sinn ágætasta félaga í
marxisma og sósíalistiskri alþjóðahyggju.
En vér íslendingar skulum ekki gleyma
þeirri þakkarskuld sem vér eigum Suslow og
flokki hans að gjalda fyrir drengilegan
stuðning, er vér stigum fyrstu og erfiðustu
sporin til að öðlast valdið yfir fiskveiðiland-
helgi vorri og háðum um leið harða baráttu
fyrir viðskiptalegu sjálfstæði voru.
Því skal Michael Suslows minnst og hon-
um þakkað fyrir þátt hans í þeirri baráttu,
nú þá hann er allur.
Einar Olgeirsson.
Michacl Suslow
SKÝRINGAR:
1. Lesa má um þessa viðureign Islendinga við Nato-
ríkin í „inrtlendri víðsjá” Brynjólfs Bjarnasonar í
„Rétti” 1952, bls. 246—247, og 1953, bls. 219—220.
2. Það væri öllum íslendingum hollt að lesa grein
Magniisar Kjartanssonar i „Rétti”: „Átökin um
landhelgisinálið. — Hvað gerðist bak við tjöldin?"
til þess að vita allan sannleikann um þá baráttu
innanlands og utan sem háð var við Nato og of-
stækisfulla, íslenska erindreka þess bandalags, er
börðust gegn lífshagsmunum íslendinga, meðan
þeir máttu. Sú grein er og til sérprentuð.
211