Réttur - 01.10.1981, Qupperneq 36
Hetjur verkalýðsins
Antonio Maidana
Meðal þeirra tugþúsunda verkalýðs- og
þjóðfrelsissinna, sem þjást í fangelsum og
fangabúðum herforingjaeinræðis í Suður-
Ameríku, sem stutt er beint eða óbeint af
bandaríska auðvaldinu, er Antonio Mai-
dana.
Maidana varð 65 ára 25. október 1981 og
var þennan afmælisdag sinn í fangelsi. Alls
hefur hann setið 21 ár af lífi sínu í fangelsi
Antonio Maidana
fyrir það að heyja ótrauður baráttu fyrir
frelsi verkalýðsins í Paraguay, fyrir að vilja
losa þjóð sína undan einræði herforingja-
klíknanna, sem kúgað hafa nú þjóðina í 45
ár. Frá 1958 er það fasistinn Stroessner, sem
hefur völdin og safnar að sér fasistisku ill-
þýði allsstaðar úr heiminum, ekki síst þýsk-
um nasistum. Bandaríska auðvaldið er góður
vinur hans og verndari.
Antonio Maidana hóf snemma baráttu
sína. Fæddur 1916, sonur kennara, er hann
1937 orðinn formaður Sambands lýðræðis-
sinnaðra stúdenta. 1936 hafði hann gengið í
Kommúnistaflokk Paraguay, er stofnaður
var 1928, en fékk aðeins að starfa löglega í 6
mánuði.
Síðan hefur hann helgað líf sitt baráttunni
fyrir frelsi hinna vinnandi stétta. Sem for-
maður Kennarasambands landsins stjórnaði
hann verkfalli 1941, er varð hið mesta verk-
fall kennara og stúdenta í sögu landsins.
Hann var fangelsaður og dæmdur til dauða,
en vegna gífurlegra mótmæla var dómnum
breytt í ævilangt fangelsi. En Antonio tókst
að flýja úr fangabúðum þeim, sem hann var
settur í, og hóf leynistarfið að nýju. 1947
lendir hann enn í fangelsi eftir harða baráttu
alþýðu, en tekst samt að flýja nokkru síðar.
Kommúnistaflokkurinn hafði 1949 kosið
Antonio í miðstjórn flokksins og síðan í
framkvæmdanefnd hans. Á árinu 1958 var
komið á harðvítugasta fasistaeinræði í
Paraguay. Brátt kom Antonio ásamt tveim
212