Réttur - 01.10.1981, Blaðsíða 37
miðstjórnarfélögum sínum, Alfredo Alcorta
og Julio Rojas fyrir dómstól en m.a.s. sá
dómstóll neyddist til að sýkna þá. En fasista-
stjórnin lét taka hann og setja í pyntingarhel-
víti stjórnarinnar í Asuncion. Þar var
Antonio Maidana í 19 ár, — án dóms og
laga.
Gífurleg mótmælaalda knúði fram frelsi
hans 1977. Hafði flokkurinn þá kjörið hann
formann sinn 1971.
Allan þann tíma, sem hann sat í þessu
fangelsi fékk hann engan póst, engin blöð,
engar bækur, engan pappír til að skrifa á og
auðvitað ekkert útvarp. Það átti að brjóta
hann og aðra félaga hans, — stundum 13 í 8
fermetra klefa — andlega á bak aftur. En
það tókst ekki.
,,Við fengum að vita um sigur Castros á
Kúbu. Það var varðmaður hlynntur okkur,
sem hvíslaði því að okkur,” — sagði
Antonio 1978, er hann var frjáls og heimsótti
m.a. þýska alþýðulýðveldið.
En þótt Antonio nyti frelsisins eftir þessa
löngu fangelsisnótt og þyrfti margt að sjá og
•esa og kynna sér, knúði skyldan hann til að
halda aftur til Suður-Ameríku í nánd við
föðurland sitt, er hann vildi frelsa úr fasista-
klóm.
En sameiginlega tókst leynilögreglu
Argentínu og CIA Bandaríkjanna að kló-
festa hann í ágúst 1980 og afhentu hann
fasistalögreglu Stroessners. — Aftur var
hann kominn í klær þessara fasista, sem
hræðast hann svo að þeir hafa hettu yfir
höfði hans, svo hann þekist ekki.
Situr hann nú í fangabúðunum Emoscada,
— sem alþýðan kallar Bastiljuna —. Vél-
byssurnar eru allt um kring þetta pyntingar-
víti. —
En að lokum munu kröfur alþýðu um all-
an heim aftur frelsa þessa hetju, — ef fas-
istastjórninni, — vinum og samherjum
Reagans og Nató — tekst ekki að murka lífið
úr þessum kommúnista, sem hefur orðið að
sitja í dýflissum fasista þriðjung ævi sinnar.
Þess skal getið til að skýra vináttuböndin
milli fasista Paraguay og Reagans Banda-
ríkjaforseta að bandarísku auðfélögin Trend
Ressources International Ltd. og Teton Ex-
ploration Drilling Co. fengu einkarétt —
gegn góðu gjaldi — til að hagnýta miklar
málmnámur í Chaco-héraði Paraguays.
Sömuleiðis hafa bandarískir olíuhringir
fengið aðgang að mörgum olíulindum
Paraguays. Og meðan þessir auðhringir stór-
græða, lifir alþýðan við sárustu fátækt — og
þeir sem fyrir rétti hennar og frelsi berjast
eru pyntaðir í fangelsum.
Rita íbarburu
Rita Ibarburu er fædd 1915 í San Jose í
Uruguay. Hún lærði læknisfræði, gekk í
æskulýðssamband Kommúnista og síðan í
flokkinn. Frá 1955 vann hún í flokksforust-
unni og stjórnaði hinu fræðilega riti flokks-
ins „Estudios”. Síðan varð hún ritstjóri
kvennablaðs flokksins „Nosotras”.
Árið 1973 braust einræðisstjórn til valda í
Uruguay. I harðvítugri leynistarfsemi gegn
fasistastjórninni varð ,.,félagi Chicha”, eins
og hún var kölluð, fræg fyrir baráttu sína.
En allir Kommúnistar, er stjórnin náði í áttu
ægilegar pyntingar á hættu.
En 1975 tókst fasistalögreglunni að ná
henni. Byrjað var að pynta hana með raflosti
og rífa neglur af tám hennar. Síðan var hún
mánuðum saman pyntuð í kvennafangelsinu
Punta Rieles. Hún var líka neydd til að horfa
á pyntingar hinna fanganna. Þannig átti að
213