Réttur - 01.10.1981, Side 38
Kita Iharhiiru
buga hana. En þrátt fyrir alla þá grimmd,
sem beitt var, hélt hún áfram að vera hinum
föngunum fyrirmynd í hugrekki og stað-
festu.
Ein af þeim, sem nieð henni var, hefur síð-
ar lýst aðförunum á þessa leið.: Við vorum
yfir eitt hundrað i bragga, karlar og konur,
öll nakin og fjötruð. Við urðum ýmist að
standa í löngum röðum eða liggja á gólfinu.
Eftir pyntingarnar gat ég ekki hreyft mig.
Blóðið var í munni mér, kverkarnar þurrar.
Allt hringsnérist í höfði mér: Myndir stígvél-
anna, pyntingartækjanna, skelfingarópin,
móðganirnar, líkamar, er féllu og sparkað
var á fætur aftur. Brennandi oddum raf-
pyntingartækja var beitt á viðkvæmustu
staði líkamans og mér fannst sem væri ég á
rönd djúprar gjár, sem ég dytti í og yrði að
komast upp úr, til að geta andað. Klukku-
tímar — dagar liðu. Þá heyrði ég skýra,
fagra rödd, þjóðkvæði, seni við kunnum öll
— og þó ég gæti ekkert séð, því hetta var al-
veg yfir öllu höfðinu, þá þekkti ég röddina.
Nafn Ritu kallaði hver til annars og nóttin
var ekki lengur eins svört.
En pyntingarnar hafa leikið Ritu svo illa,
að hún er nú lömuð vinstra megin, er í lífs-
hættu og hefur verið flutt í hersjúkrahús í
Montevideo. Gerardo Cuesta, sem áður var
þingmaður og ritari verkalýðssambandsins
CNT dó í september 1981 eftir álíka pynt-
ingar og Rita hefur orðið að þola.
Eins og nærri má geta eru þessi ríki eins og
Uruguay og Paraguy undir sérstakri vernd
Bandarikjaauðvaldsins og CIA. Valdaránið i
Uruguay gerðist um svipað leyti og stjórn
Allende var steypt í Chile að undirlagi ITT
og annara bandarískra auðhringa. Og þessir
herrar hrópa svo að þeir séu verndarar lýð-
ræðisins — og til eru menn á íslandi, sem
trúa því.
214