Réttur - 01.10.1981, Blaðsíða 42
Benjamín Franklíns, m.a. vegna þess að hún
hefur ekki kunnað að varast það auðvald,
er upp reis hjá henni sjálfri, — og hafa þó
bestu foringjar hennar varað hana við því
allt frá því Abraham Lincoln talaði til henn-
ar á síðasta ári ævi sinnar — og þar til m.a.s.
Eisenhower forseti varaði hana við í kveðju-
ræðu sinni.
Ofstækið og heimskan, sem fjölmiðlar
auðvaldsins þar vestra, skapa og ala á var
slíkt að auðvaldspressan brennimerkti
Franklin D. Rooswelt, mesta stjórnskörung
þjóðarinnar á þessari öld sem kommúnista,
af því hann þorði að gera m.a. þjóðnýtingar-
ráðstafanir og ýmsar endurbætur í þágu
hinna atvinnulausu og vinna þannig gegn
heimskreppunni.
En Bandaríkjaauðvaldið mun fá að sjá
það að yfirgnæfandi meirihluti mannkyns
mun ekki láta bjóða sér hungur og hörmung-
ar í heimi, þar sem öllum gæti liðið vel. Hinn
kúgaði fjöldi mun rísa upp fyrr eða síðar.
Bandaríska auðvaldið getur að vísu barið
þá frelsisbaráttu niður, af því það hefur
vopn, sem enska auðvaldið hafði ekki 1776.
En beiting kjarnorkuvopnsins, sem
bandaríska auðvaldið nú undirbýr, þýðir út-
þurrkun mannkynsins, líka ,,yfirstéttar
heimsins” í Mammonsríki Ameríku. — Og
skyldi því finnast slíkur „sjálfsmorðssigur”
of dýru verði keyptur, þá bíður þess auð-
valds ekkert annað en að tapa eins og breska
kúgarans1776.
Hvers konar þjóðfélaj» mófa hin
skefjalausu gróðafyrirtæki dráps-
iðjunnar?
í New York býr helmingur allra eitur-
lyfjaneytenda Bandaríkjanna, rán er
framið á 7. hverri mínútu, á öðrum
hvorum klukkutíma nauðgun, á sjötta
hverjum klukkutíma morð.
Þar eru og 500 sterkustu fyrirtæki
Bandaríkjanna, New York er
höfuðborg heimskapítalismans.
íbúarnir eru 7Vi miljón. Rotturnar yfir
8 miljónir.
218
Þcssi mynd var gefin úl af lögregiiisamlökiiin í Ne»
York, liinum almenna borgara lil artvörunar.