Réttur - 01.10.1981, Qupperneq 44
Tvcir af herrum Du Poinl-samsleypunnar
kafbáta í auðvaldsheiminum. Ennfremur er
G.D. orðið annar stærsti framleiðandi or-
ustuflugvéla í Bandaríkjunum, —
McDonnell stærstur. Og sífellt bætast við
nýjar gerðir drápstækja hjá G.D.
Að sama skapi eykst peningaveltan hjá
G.D., frá 1974 til 1978 um 63%. Gróðinn
jókst um 173%. Og framtíðin er örugg: G.D.
hefur pantanir til langs tíma, er nema 14
miljörðum dollara. í þjónustu auðfélagsins
vinna 77þúsundstarfsmenn.
Framleiðslan á flugvélum, sem fara hraðar
en hljóðið, er ekki takmörkuð við Bandaríkin.
G.D. á pantarir á þeim til framleiðslu næstu
áratugi: 1396 fyrir Bandaríkin, 348 fyrir
Belgíu, Holland, Danmörk og Noreg, 75
fyrir ísrael, 24 fyrir Suður-Kóreu: alls ca. 9
miljarða dollara sala, en G.D. býst við aukn-
ingu upp í 5000 stykki!
Framleiðslan á kafbátum, einkum eld-
flaugakafbátum af nýrri ,,Trident”-gerð
með 24 skotstæðum (áður 16) er hafin.
Aðeins á árinu 1981 kostar sú framleiðsla
2,14 miljarða dollar, en reiknað er með 30
miljarða heildarkostnaði.
G.D. er stórframleiðandi hinna mikið um-
töluðu ,,Cruise Missiles”, sem Reagan er að
reyna að kúga Vestur-Evrópu-ríki til að
kaupa. — Hinsvegar varð G.D. undir í sam-
keppninni við Boeing-flugvélaverksmiðjurnar
um framleiðslu 120 sprengjuflugvéla B-52 1.
G.D. framleiðir eldflaugar þúsundum
saman, 1978 t.d. fyrir 81 miljón dollara.
Ennfremur hefst um miðjan þennan áratug
hjá G.D. framleiðsla fylgihnatta, tuttugu og
fjögra, er skotið verður á loft og fara hring-
inn í kringum jörðina í 16—20 þúsund
kílómetra hæð. Með þeim er hægt að stýra
eldflaugum, sem skotið er heimsálfa á milli,
þannig að þær hitti skotmarkið með slíkri
nákvæmni að ekki skeiki meir en 10 metrum
til eða frá.
Þá er G.D. stórframleiðandi herskipa og
alls þess er flugvélar og eldflaugar snertir.
Og það er ekki skorið við nögl, þegar gróð-
inn er ákveðinn. Seymour Melman, prófess-
or í iðnaðartækni við Columbía háskólann,
reit um þær aðferðir, að þar sem venjuleg
iðjufyrirtæki reyndu að framleiða sem ódýr-
ast, þá hefðu þau fyrirtæki, er vinna fyrir
Pentagon (það er hermálaráðuneytið), fram-
leiðsluna sem dýrasta.
Þannig var kjarnorkusprengju-flugvélin
F III, sem G.D. framleiðir, upphaflega áœtl-
uð á 3 miljónir dollara, en kostar 9 miljónir
220