Réttur - 01.10.1981, Qupperneq 45
nú í framleiðslunni. — Og það er engin
hætta á að gagnrýni komi frá Pentagon. Því
megnið af valdamönnum þar koma frá stór-
iðjunni og fjármálaheiminum, t.d. 1940—67
átta af 10 hermálaráðherrum, allir aðstoðar-
ráðherrar varnarmálaráðuneytisins og flestir
megtarmenn Pentagon yfirleitt2.
Það eru svona auðdrottnar, sem ógna nú
lífi mannkynsins í gengdarlausum gróða-
þorsta sínum og með valdi sínu yfir fávísum
ofstopamönnum, sem stjórna Bandaríkjun-
um.
Þróun G. D. í miljónum dollara:
Velta
Gróði
1974 1775 1976 1977 1978
1968 2160 2554 2901 3205
51 81 100 103 139
(Gróðinn vafalaust of lágt uppgefinn!
Tíu stærstu viðskiptavinir Pentagon (1979) í miljörðum dollara:
General Dynamics 4,15
McDonnell Douglas 2,86
United Technologies 2,40
Lockheed 2,23
General Electric 1,79
Litton Industries 1,56
Boeing 1,52
Hughes Aircraft 1.49
Raytheon 1.31
Grumman 1,18
„Gereral Dynamics”: ,,Þetta félag er stærsti framleiðandi fyrir Pentagon, vonast eftir að
selja á næstu 10 árum 1388 nýjar F-16 vélar til flughersins... Electric Boot Division í Proton,
Connecticut, deild úr G.D., byggir kjarnorkukafbáta SSN 688 og eldflaugakafbátana,
Trident. Sjóherinn hefur pantað 8 Trident og verðið fór fram úr áætlun: upp í 1,2 miljarða á
hvem kafbát. G.D. hefur og samninga um 48 Cruise Missiles Tomahawk, eldflaugar til að
skjóta frá kafbátum eða herskipum, fyrir 96 miljónir dollara.:
í „Tirne” New York, 20. apríl 1981
SKÝRINGAR:
1. Boeing-vcrksniiðjurnar tilhevra hinum volduga Du
Pont-auðhring, sem á fyrir utan allt annað Coea-
Cola-verksmiðjurnar og Gencral Motors.
2. Bandaríska tímarilið alkunna Busiiwss Week, segir
svo frá, er McNarney hershöfðingi hætti og varð
hálaunaður forstjóri hjá einni deild G.D. Convair
(75.000 dollara árslaun fyrst).:
„McNarney þekkir besta viðskiptavin Convairs,
Pentagon, (hermálaráðuneytið) betur en flestir aðr-
ir... Meðal kaupsýslumanna er orðatiltækið: „Náðu
þér í hershöfðingja” (Get yourself a general). Hvaða
deild ríkisstjórnarinnar eyðir mestu fé? Hermála-
ráðuneytið. Hver er mestur sérfræðingur í króka-
leiðum stjórnarráða (red tapc), jafnvel meiri en þess-
ir, sem krækja sér i 5%? Hershöfðingi eða aðmiráll.
Láttu hann þá verða stjórnarformann.” (nánar má
lesa um þetta kcrfi í bók Fred Cooks: The Warfare
Slale. Þessi tilvitnun er á bls. 190)
221