Réttur - 01.10.1981, Qupperneq 47
utan líf flestra íslendinga og fleiri.
Bandaríkjastjórn háði — 7 ár stríð í
Vietnam. Það var lítið stríð í samanburði við
það atomstríð, sem Itún óskar eftir að
Evrópunienn heyi innbyrðis. En hvað
kostuðu t.d. bara flugvélarnar þá, sem
Bandaríkjamenn misstu?
8000 flugvélar voru skotnar niður þar.
Stykkið af Pantom-flugvélunum kostaði 6
miljónir dollara, af B 52 vélunum 8 miljónir
dollara, af F III 15 miljónir dollara. —
Reiknið út hvað þær kosti samanlagt. Ef við
reiknum með 10 milj. dollara meðalverði þá,
yrði þetta 80.000 miljónir dollara — dýrasti
ruslahaugur sögunnar — og aðeins hluti
stríðskostnaðarins.
Hvað yrði þá nú?
Og ef við færum svo að reikna hvað það
kostaði að drepa mennina?
Það kostaði Bandarískjastjórn 50.000
dollara að drepa hvern þann Vietnam-búa,
sem þeir myrtu.
Evrópu-búar myndu líklega selja líf sitt
dýrar en ein fátækasta þjóð heims, Vietnam-
ar, gátu gagnvart ríkasta og voldugasta her-
veldi heims.
Á það að vera hið síðasta og — göfugasta
— hlutverk íslensku þjóðarinnar að gera það
ódýrara fyrir Kanann að láta myrða Evrópu-
búa, — ódýrara með því að Ijá
morðingjunum land vort sem brúarstólpa —
og fórna svo lífi þjóðar vorrar fyrir?
Hvað getur brjálsemin orðið mikil með
stöðugum heilaþvotti íslendinga — líka í
borð um flugvélamóðurskipum?
Nato — Tyrkland
Það fór sem Réttur spáði í síðasta hefti að
Bandaríkjastjórn myndi Ieggja blessun sína
yfir herforingjaeinræðið í Tyrklandi, fang-
elsun þúsunda lýðræðissinna og fjöldamorð
harðstjórnarinnar. Og Bandaríkjastjórn
lætur ekki þar við sitja: Hún sendir morð-
stjórninni tyrknesku vopn og fé, svo hún
megi sem ötulast halda harðstjórn sinni
áfram. Það er greinilegt, ekki aðeins af að-
stoð hennar við fasistastjórnir E1 Salvador,
Guatemala og Chile, heldur og af hjálpinni
við herforingjaeinræðið í Tyrklandi að
Bandaríkjastórn lítur á sig sem sérstakan
verndara fasistastjórna hvar sem er í heimin-
um. Hún lætur ekkert ,,lýðræðis”þvaður
hindra sig í að sýna hug sinn allan.
Það bíða 52 fangelsaðir verkalýðsforingj-
ar Tyrklands dóms, sem gæti orðið dauða-
dómur, — ef verkalýðssamtök Evrópu þora
ekki af ótta og undirgefni við auðvaldsstjórn
Bandaríkjanna að mótmæla.
Það voru strax 30 þúsundir Iýðræðis-
sinna hnepptir í fangelsi í Tyrklandi, eftir að
herforingjaráðið braust til valda, fangelsaði
fyrrv. forsætisráðherra sósíaldemokrata,
Ecevits, — rak ríkisstjórnina frá, — bannaði
alla stjórnmálaflokka — stal öllum eignum
þeirra — og var búið að láta myrða um 100
manns síðast þá fréttist.
Það hefur ekki heyrst mikið um mótmæli
gegn þessari Nato-fasistastjórn frá íslandi.
Er t.d. stjórn Alþýðusambandsins alveg
sama um þó verkalýðssamtök séu bönnuð og
verkalýðsforingjar drepnir, ef það eru bara
Nato-stjórnir, sem morðin fremja. — Ógæfa
Póllands, sem á sér dúpar rætur, er engin
afsökun fyrir því að þegja við fasistískri
verkalýðskúgun í Tyrklandi eða E1 Salvador,
bara af því auðvaldsstjórn Bandaríkjanna
vill svo vera láta.
223