Réttur - 01.10.1981, Blaðsíða 48
W
NEISTAR
Skefjalaus gróöaþorsti
auðvaldsins
„Auómagnið er skelfingu
lostið, ef það græðir ekki — eða
bara litiö... Þvf meiri gróða sem
það fær þvi bíræfnara veröur þaó.
Ef 10% gróði er öruggur, er það
allstaðar nýtilegt. Ef gróðinn er
20% lifnar heldur en ekki yfir því.
Við 50% gróða verður það fifl-
djarft. Ef 100% gróöi er viss, þá
traökar það öll mannleg lögmál
undir fótum sér. Og ef útlit er fyrir
300% gróða, þá er enginn sá
glæpur til, sem það er ekki reiðu-
búið til að fremja, jafnvel þó það
kunni að kosta það hengingu.”
P.J. Dunning (breskur verk-
lýðsforingi). (Tilvitnun í
hann i ,,Auðmagninu" eftir
Marx, bls. )88 i 23. bindi
þýsku útgáfunnar af heiid-
arritum Marx og Engels.)
Og nú hefur þetta auóvald hins
skefjalausa gróðaþorsta vopna-
vald, er getur tortimt mannkyninu,
ef það reynir að svala gróðaþorsta
sinum með beitingu þeirra.
★
Sögusögn
Heyrst hefur að maður einn
hafi spurt Óla Jó hvi hann hafi
bara veriö að mótmæla herfor-
ingjastjórn I Póllandi, sem ríkis-
stjórn hafi þó skipað. Óla Jó datt i
hug danskt máltæki ( — ,,man
maa tude med de hunde man er í
blandt") og svaraði að vörmu
spori: „Maður verður að gelta
með þeim hundum, sem maður er
með og Hund-Tyrkinn heimtaði
þetta, þvi sem góður Nató-bróðir
vill hann aðeins herforingjastjórn-
ir, sem meó ofbeldi setja rikis-
stjórnir af.
★
Matthías Jochumsson
um Sigurð málara
„Sigurður frændi yðar dó I
morgun... Hann var þó á fótum
nema tvo daga... Hann hafði alla
ævi miklu sterkari þjóðernis-, rétt-
lætis- og feguröarhugsjónir en
aðrir, sem ég hef þekkt, og komst
þvl I öfugt samband við þessa
gutlara-öld, sem hann var gjör-
samlega í mótsögn við. Sál hans
og vilji var miklu hreinni en hjá
flestum öðrum, en hann var þver
og stiröur, vandfýsinn og ein-
rænn i lund, hann var strang-mór-
alskur idealisti og svarinn fjand-
maður allrar hræsni, kúgunar og
villu. Trúmaður var hann enginn I
venjulegri þýðingu þess orðs, en
sál hans var þó betra musteri
sannleikans en 1000 sálir ann-
ara.”
Slra Matthlas i bréfi til slra
Daviðs Guömundssonar á
Hópi 7. september 1874.
(Tilvitnun úr hinni ágætu
æviminningu Jóns
Auðuns, er sem formáli að
myndabók þeirri, ergeymir
myndir eftir Sigurð.)
★
Nasisminn í gær, ameríski
imperialisminn í dag
„Þvl er ekki aö neita, að slðari
árin hefur þjóöleg vakning, þjóð-
ernis- og endurreisnarhreyfing
farið um öll hin helztu lönd álf-
unnar, og hefur ekkert staðist við.
Um noróanverða álfuna hefur
hreyfingin að sjálfsögðu mótast I
anda þess þjóðernis, er þar rlkir
að stofni, hins germannsk-nor-
ræna, og til þess stofns heyrum
vér íslendingar. Sú stefna er því
hvorki né getur verið „erlend”,
hún er blátt áfram vort og aiira
norrænna þjóða innsta llf. Og hún
verður þeirra eina bjargráö, ef
þjóðernið á að varðveitast um ald-
ir framtiðarinnar... Meó þeim for-
mála bjóðum vér þjóðernishreyf-
inguna velkomna. Hvort sem þeir,
er að henni standa, kallast þjóð-
ernissinnar eða annað þvllíkt,
eiga þeir að tilheyra hinni fs-
lensku sjálfstæðisstefnu — og
eru hluti af Sjálfstæðisflokkn-
ív/77. ”(Undirstrikanirr I Mbl.)
Morgunblaðið 25. maí 1933;
★
Auðmenn og fátækir
„Eru þaó þó ekki hinir rlku, sem
undiroka yður og draga fyrir dóm-
stóla!” (3.6.)
„Hvað stoöar það, bræður mln-
ir, þótt einhver segist hafa trú, en
hefir ekki verk? Mun trúin geta
frelsaö hann?” (3.14.)
„Heyriö nú, þér auómenn, grát-
iö og kveinið yfir þeim eymdum,
sem yfir yður munu koma. Auður
yðar er oröinn fúinn og klæði yðar
eru oróin möletin, gull yðar og
silfur er orðið ryðbrunnið og ryöiö
á þvl mun verða yður til vitnis og
eta hold yðar eins og eldur; þér
hafið fjársjóðum safnað á slöustu
dögunum. Sjá, laun verkamann-
anna, sem hafa slegið lönd yöar,
þau er þér hafið haft af þeim,
hrópa og köll kornskuröarmann-
anna eru komin til eyra Drottins
hersveitanna.” (5.1-5.)
Hið almenna bréf Jakobs
Nýja testamentinu.
224