Réttur - 01.04.1982, Blaðsíða 1
inttur
65. árgangur
1982 — 2. hefti
Mannskæðasta og hryllilegasta styrjöld mannkynssögunnar stendur yfir
í ár — og hefur staðið mörg ár undanfarið. Hún er hljóðlát og án venjulegra
vopna — og litt getið í fréttum, enda eigast þar ójafnir við: Mannfallið er allt
öðru megin.
100.000 börn falla í valinn á hverjum þrem dögum. (Skýrslur S.þ.) Það er
sem íbúafjöldi íslands um 1920. — 14 miljónir barna falla þannig árlega, ár
eftir ár. Það er meir en mannfallið í heimsstríðinu 1939—45, en þá féllu 50
miljónir á rúmum 5 árum, 20 miljónir þar af Sovétfólk. — En mannfall hins
vopnlausa stríðs samsvarar 70 miijónum á 5 árum.
Styrjöldina heyja annarsvegar saddir og voldugir auðkýfingar Bandaríkj-
anna og Evrópu, er láta myrða þessar 14 miljónir svangra og varnarlausra
barna, er deyja árlega úr hungri og fátæktarsjúkdómum. Þeir þurfa ekki að
fremja morðin með eigin höndum, geta jafnvel lokað augunum — og talað
um frjálsa samkeppni — meðan börnin kveljast til bana. Morðvopnið er
hungurdauðinn.
Hinsvegar eru svo sveltandi miljónir fátækra barna: morðvopn hungurs-
ins bítur svo vel á þau sem 100 Hiroshima-sprengjum væri á þau varpað ár-
lega. — Auk hins sveltandi barnaskara eru svo 375 miljónir manna, sem
draga fram lífið á mörkum hungurdauðans.