Réttur - 01.01.1983, Blaðsíða 28
Páll Bergþórsson:
Frumskógar og stjórnmál
„Það er verið að útrýma hinum gífurlegu regnskógum hitabeltisins. Ef því
verður haldið áfram með eins vaxandi hraða og undanfarna áratugi, munu
frumskógarnir brátt heyra sögunni til, jafnvel fyrir aldamótin.“
Þessi orð sagði grasafræðingurinn F. Reymond Fosberg á alþjóðlegri ráðstefnu
um umhverfismál í Reykjavík 1977. Fosberg var þá starfandi hjá National
Museum of Natural History, við Smithsonian Institution í Washington.
Þetta er geigvænleg yfirlýsing, og nýrri upplýsingar benda til, að hér sé ekki
ofsögum sagt. Því er ástæða til að beina athyglinni að þessu vandamáli. Það
getur virst fjarlægt okkur Islendingum. En hér er um að ræða hrottalega
misnotkun á gæðum jarðar, og við þá sögu koma mjög hinir ófyrirleitnu
auðhringar, sem við höfum sannarlega komist í kast við.
Lífríki hitabeltisskóganna
Regnskógar hitabeltisins eru ákaflega
voldugt og merkilegt lífríki. í samanburði
við þá verður hin fátæklega íslenska
gróðurþekja harla lítilmótleg. Algengasta
skilgreiningin á hitabeltisskógi eða frum-
skógi var sett fram árið 1898, og er þessi:
„Sígrænn skógur, rakasæll, minnst 30
metra hár, en venjulega miklu hávaxnari,
auðugur að gildvöxnum vafningsviði og
sníkjutrjám eða sníkjujurtum.“
Frumskógurinn unir best þar sem árs-
úrkoma er 2000 mm eða meira og til-
tölulega jöfn yfir árið, og meðalhiti 20-30
Celsíusgráður. Reglulegur frumskógur
myndar hvert Iaufþakið yfir öðru, venju-
lega þrjú, stundum aðeins tvö. Fjöl-
breytni trjátegundanna er gífurleg, oft
100 mismunandi tegundir á nokkrum þús-
undum fermetra. Og eftir því er dýralífið
fjölbreyttara en í nokkru öðru lífríki
jarðar.
Lengi vel var þessu volduga lífríki ekki
mikil hætta búin af manninum. Aðeins
fáir þjóðflokkar veiðimanna áttu þarna
heimkynni, og fáir þeirra eru raunar enn
við lýði. Þannig gekk þetta þar til ásókn
Evrópumanna hófst, fyrst í útjöðrum
skóganna og meðfram helstu ánurn. Síðar
fór markaður að aukast fyrir ýmiss konar
framleiðslu þessara landa, svo sem
gúmmí, banana, mahóní og annan hita-
beltisharðvið. Pá voru plantekrur settar á
28