Réttur - 01.01.1983, Page 54
ir: Samborgarasjóði. Það breytir þó ekki
því, að þeim er ætlað að breyta valdakerfi
efnahagslífsins á svipaðan hátt og launa-
mannasjóðir Sósíaldemókratanna. Fjár-
mögnunarleiðir þeirra eru ólíkar og lang-
tímamarkmiðin einnig. Hugsanlegum
arði af hlutafé sjóðanna verður varið til
samfélagslegra þarfa og hlutabréfin er
ekki hægt að selja.
Dönsku sjóðirnir eru hugsaðir sem
fjárfestinga- og lánasjóðir. Nafnverð og
arður hlutabréfanna er greiddur út eftir
lágmarksbinditíma. Þessi háttur minnir
um margt á ríkisskuldabréf okkar að öðru
leyti en því, að með launamannasjóðun-
um fylgja völd og áhrif þar sem fé þeirra
er notað. í dönsku hugmyndunum er sett
þak við helmingseign launamannasjóð-
anna á hlutabréfum fyrirtækis en í sænsku
sjóðahugmyndunum er ekki hámarks-
eign.
Með hugmyndum sósíaldemókratanna
í Svíþjóð er markmiðið að draga úr
einkaneyslunni með því að lækka útborg-
uð laun um 1% og auka sparnaðarhlutfall
nokkru meira. Síðan verður sá sparnaður
notaður sem áhættufé eingöngu í rekstri.
Vensterpartiet hugsar sér skattaleiðina
eins og oft hefur verið farin hér á landi.
En ólíkt því sem hér gerist á sá fjármagns-
flutningur, sem með því verður, að færa
verkafólki efnahagslegt lýðræði og sósíal-
ískt þjóðfélag.
Með dönsku hugmyndunum er smá
saman dregið úr einkaneyslunni en síðan
eftir líklega eins og einn áratug ætti hún
að geta náð svipuðu stigi aftur.
Ég tel að allar þessar hugmyndir um
launamannasjóði eigi fullan rétt á sér tii
umræðu hér á landi. Ef til vill er erfitt að
tengja þær við íslenskar aðstæður. Verð-
bólgan er þar erfiðasti hjallinn. Þó launa-
mannasjóðirnir feli ekki í sér neina lausn
á óðaverðbólgu, þá geta þeir verið þáttur
í þeim bardaga. Verðbólgufjárfestingar
undanfarinna áratuga hafa gefið af sér
sorglega lítinn arð ef marka má orð
kunnáttumanna. Með öflugum launa-
mannasjóðum má koma einhverjum skik
á fjárfestinguna. Samdráttur í einka-
neyslu, jafnvel þótt lítill sé, er okkur
dýrmætur á meðan við þurfum að kaupa
stóran hluta hennar erlendis frá. Þörfin
fyrir erlend lán, sem í sumum tilfellum
eru niðurgreidd fyrir innlendan lánamark-
að, mun minnka. Öll þessi atriði eru
jákvæð í baráttu gegn verðbólgu. Þegar
til lengdar lætur efast ég um að verðbólg-
an verði launamannasjóðunum skeinu-
hættari en þeir verðbólgunni.
Alþýðusamband íslands hefur á þing-
um sínum ályktað um atvinnulýðræði og
þingmenn Alþýðubandalags <5g Alþýðu-
flokks hafa flutt frumvörp á Alþingi um
launamannasjóði. Að mínu mati eru
launamannasjóðir raunhæfasta Ieiðin til
þess.
HEIMILDIR:
Arbetarrörelsen och Löntagarfonnderna, Tidens
Förlag, 1982.
Arbetarrörelsen och fonderna, Vensterpartiet
kommmunisterna.
0D kort fortalt, LO, Danmark, 1979.
54