Réttur - 01.10.1983, Side 3
Watergate-mafía undirbýr einræðisvald nýríkra
Kanaþjóna á íslandi:
Samsæri svartasta
afturhalds í
Ihaldi og Framsókn
gegn íslenskri þjóð
Nú er skammt stórra höggva á milli af hálfu ríkustu auðkýfinga, sem að völd-
um hafa setið á Islandi. Auðséð er að ekki skai bíða boðanna, heldur tryggja
þessari valdaklíku einræðisaðstöðu í íslensku efnahags- og menningarlífí. Hún
óttast að, ef beðið er, kunni alþýða manna að vakna það fljótt, að henni verði
steypt af stóli. Hver árásaraðgerðin á almenning hefur fylgt annari: hinum
hræddu auðvaldsdrottnum, sem í senn gera sig seka um þjófnað og rán, er brátt
í brók. Það þarf ekki aðeins að ræna alþýðu, heldur og blinda hana svo að ýmist
samþykki hún í auðmýkt niðurlægingu sína eða þori ekki að leggja til þeirar bar-
áttu, er fellt geti núverandi kaupránsstjórn og Watergate-mafíu hennar frá
völdum.
I.
Frumkvöðlar fátæktarinnar nýju
Kaupránið mikla
Bráðabirgðalögin um kaupránið mikla,
sem ríkisstjórn íhalds og Framsóknar gaf
út, er stórfelldasta rán, sem framið hefur
verið á launþegum íslands og var rætt í
leiðara síðasta „Réttar“. Og því er misk-
unnarlaust hótað að sæki alþýða manna
rétt sinn og knýji fram umsamið kaup-
gjald, þá skuli dollarinnn margfaldaður í
verði, svo dýrtíðin fái að skella á alþýðu
á ný. (Sjá línurit á bls. 207.)
Þetta er sú arðránsaðferð, sem beitt
hefur-verið að bandarískum ráðum, allt
frá 1950 að bandarískt vald fyrirskipaði í
krafti Marshallsamnings að hækka dollar-
inn úr rúmum 6 krónum í rúmar 16 krón-
ur — og fara þannig að áfram, ef verka-
lýðurinnn dirfðist að bæta kjör sín.
(Línurit á bls. 223 sýnir allt að 40 ára bar-
áttu til að halda kaupmættinum frá 1945.)
Með þessari þjófnaðaraðferð, sem hin-
ir amerísku sérfræðingar í þeirri grein
kenndu íslenskri yfirstétt, hefur í rúm 30
ár verið rænt vægðarlaust: Kaupgetu
verkalýðsins, sparifé almennings og verð-
gildi sjóða eins og atvinnulevsistrygginga-
sjóðs verkalýðsfélaganna og annara al-
mannasjóða.
195