Réttur - 01.10.1983, Blaðsíða 9
Fjórir formenn „Sóknar“: Margrét Auðunsdóttir, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Aðalheiður Hólm. Guðmunda
Jónsdóttir.
minnst á eina samþykkt „Sóknar“.
„Sókn“ hefur frá því hún var stofnuð
fyrir 50 árum af Aðalheiði Hólm, er var
fyrsti formaður hennar og stóð framar-
lega í Kommúnistaflokki íslands, verið
dugandi málsvari kvenna og annars lág-
launafólks undir stjórn þeirra fjögurra
formanna, er þar hafa verið þessa hálfa
öld, en þær eru auk Aðalheiðar Hólm:
Guðmunda Jónsdóttir, Margrét Auðuns-
dóttir og nú Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.
Á fundi 14. nóvember 1983 var m.a.
eftirfarandi samþykkt gerð út af árás
ríkisstjórnarinnar á verkafólk:
„Bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar um
afnám samningsréttar og vísitölubóta á
laun hafa þegar skert kaupmátt verka-
fólks um það bil 30% og kjaraskerðingin
heldur áfram meðan stefna stjórnarinnar
nær fram að ganga og verðlagið hækkar
meira en kaupið. Þessi bráðabirgðalög
eru liður í aðgerðum ríkisvaldsins til að
velta byrðum kreppunnar yfír á herðar
verkalýðsins. Yerkafólkið er látið borga
styrki til atvinnurekenda og fjármála-
manna til að auka gróða þeirra.
Það er því augljóst og liggur í hlutarins
eðli að ríkisstjórnin mun ekki aflétta
bráðabirgðalögunum af sjálfsdáðum
heldur fylgja þeim eftir með áframhald-
andi árásum á vinnandi fólk.
Ríkisstjórnin mun aldrei ganga til
201