Réttur - 01.10.1983, Side 11
Bandaríkjanna í áhrifastöðum á íslandi
hafa alltaf reynt að hindra mikla hagnýt-
ingu þess markaðs, sem finna má í sósíal-
ísku löndunum. 1959 fór 30% af útflutn-
ingi íslands til þeirra lands, en nú er búið
að koma honum niður fyrir 10%.
Það mun ekki vanta möguleikann á að
skapa nýja framleiðslu á mörgum sviðum
á íslandi, ef það bara er áhugi fyrir því og
forsjá beitt, en ekki öll hugsun á þessu
sviði látin snúast um hreppapólitík sem
nú er að enda í „skömmtun“ veiðikvóta.
IV.
„Þetta land á ærinn auð,
ef menn kynnu að nota hann“
Það, sem er þjóð vorri miklu þungbær-
ara en áföll frá náttúrunnar hálfu, er sú
skammsýna, ágjarna og vitgranna yfir-
stétt, sem þjóðin hefur orðið að burðast
með og þá fyrst og fremst verslunar- og
braskvaldið. Það er þess sök að alger
óstjórn hefur ríkt í fjárfestingamálum
þjóðarinnar, skapaður hefur verið vís-
vitandi viðskiptahalli, — meira og minna
vegna vitlausra samninga við EBE og
fleira, allt undir yfirskyni „verslunarfrels-
isins“, stundum máske eftir kröfu Al-
þjóðabanka og Alþjóðagjaldeyrirsjóðs.
Með þessari efnahagslegu óstjórn, sem
áróðursmenn bandaríska auðvaldsins
kalla „frelsi“, er verið að vinna að því að
gera ísland að efnahagslegri nýlendu al-
þjóðaauðvalds í krafti skuldaklafans.
Það sem er lífsnauðsyn fyrir ísland
hvað efnahagslífið snertir er: heildar-
stjórn á þjóðarbúskapnum út frá sjónar-
miði sjálfstæðis og hagsýni, — og þá fyrst
og fremst heildarstjórn á fjárfestingunni,
þar sem segja má að raunverulegir efna-
hagslegir glæpir hafa verið drýgðir.
1 staðinn fyrir rannsóknarstofnanir og
verksmiðjur í sambandi við úrvinnslu t.d.
fiskinnyfla, sem nú er hent í sjóinn, þótt
dýrmæt hráefni sé þar að finna, eru reistar
fyrir hundruð miljóna króna óþarfar
verslunarhallir og skammsýnir ráðherrar
afsaka sig svo með að ekki séu til pening-
ar í það nauðsynlegasta, meðan miljón-
um króna er hent í brask-hallirnar.
Og svo er níðst á alþýðu manna, fyrst
og fremst þeim, sem erfiðast eiga, til þess
að allt óhóf og hringavitleysa yfirstéttar-
innar fái að halda áfram að færa þjóðina
nær og nær glötunarbarminum: í skulda-
fangelsi amerískra harðstjóra, sem nú
leika Suður- og Mið-Ameríku svo hart að
við uppreisn örfátækrar alþýðu liggur,
sem rúin hefur verið inn að skyrtunni og
blasir hungurdauðinn þar við miljónum
barna, — fórnarlamba hins bandaríska
Mammons.
Það er engin þörf fyrir þá 80.000 ís-
lendinga í A.S.Í. og B.S.R.B., sem halda
íslensku yfirstéttinni uppi með vinnu sinni,
að láta bjóða sér þær kauplækkanir og at-
vinnuleysi, sem skammsýn stjórnvöld
yfirstéttarklíkunnar eru að leiða yfir hin-
ar vinnandi stéttir. Það er tími til kominn
að reka þá klíku frá völdum, en skapa að
nýju farsælt ísland m.a. í samstarfi við
þá fáu menn í atvinnurekendastétt, sem
sýna framsýni og stórhug, og við þá vís-
indamenn vora, sem nú tala fyrir daufum
eyrum við skammsýna valdhafa.
y.
Fj ölmiðlunarrisi
forheimskunarinnar
En til þess að sætta þann stóra hluta al-
þýðunnar, sem fengið hefur að finna fyrir
kaupráni, atvinnuleysi og neyð, við það
203