Réttur - 01.10.1983, Síða 12
hlutskipti sitt, — eftir að þjóð vor hefur
áður brotist út úr 6 alda nýlendukúgun og
nú í 40 ár verið frjáls af því örbirgðaroki,
er hún áður bar, — þarf að forheimska
hana svo að hún trúi öllum blekkingum
og lygum Watergatemalíunnar og blinda
hana fyrir möguleikum hennar til þess að
bæta kjör sín í stað þess að láta þau
versna að þarflausu.
Æfðir ræningjar þekkja ráðin.
Það er enn í minnum elstu manna, er
Vilhjálmur Finsen hafði stofnað Morgun-
blaðið 1913 sem óháð fréttablað. En sex
árum síðar setti dansk-íslensk stórkaup-
mannaklíka honum stólinn fyrir dyrum —
eða skammbyssuna fyrir brjóstið, ef
menn vilja heldur nota bandarískt bófa-
mál, — og heimtaði að hann seldi sér
blaðið, ella hætti hún að auglýsa í því, —
og það var morðhótun gagnvart slíku
blaði. Vilhjálmur varð að gefast upp fyrir
ræningjunum og fékk að vera ritstjóri
áfram. En auðmenn eignuðust eitraðan
fjölmiðil og forheimskunartæki.1
Nú skal sama sagan endurtekin í miklu
stærri stíl.
Sú gráðuga valdaklíka svartasta aftur-
haldsins í Framsókn og Sjálfstæðisflokkn-
um, sem alltaf hefur runnið saman í eina
ógæfuheild, er íslandi gegnir verst, hefur
nú sameinast hatrammar en nokkru sinni
fyrr, — undir ægishjálmi bandarísks
hervalds, — og hyggur á illvirki á hinum
ýmsu sviðum þjóðlífsins, sem geta riðið
sjálfstæði þjóðarinnar, frjálsri hugsun ís-
lendinga og lífsafkomu hins vinnandi
manns að fullu. — Skal í þessum kafla
aðeins rætt um fyrirhugaða aðför að
frjálsri hugsun, þ.e. andlegu sjálfstæði ís-
lendinga.
ísfilm heitir kvikmyndafyrirtæki, sem
undir ágætri stjórn Ágústs Guðmunds-
sonar hefur m.a. framleitt einhverja
bestu íslensku kvikmyndina, er gerð hef-
ur verið hér: Útlagann, söguna af Gísla
Súrssyni.2 — Ef til vill hefur ísfilm verið
komið í nokkra fjárhagslega erfiðleika, er
að því kom, m.a. vegna örrar tækniþró-
un’ar í þessari grein, að afla þurfti nýrra
dýrra tækja. Má vera að vissum aðilum
hafi þá dottið í hug að hægt væri að nota
félag þetta eða a.m.k. gott nafn þess og
færa menn, til stórra aðgerða í heimi ís-
lenskra kvikmynda, video, sjónvarps
o.fl., með öðrum orðum til skoðanaskap-
andi áróðurs, ef nægir peningar væru sett-
ir í það.
Þetta hefur gerst. Þeir aðilar, sem sam-
einast hafa í hinu nýja ísfilm, hver með 2
miljónir króna hlutafjárframlagi eru eftir-
farandi (auk ísfilms hf.):
Almenna bókafélagið. — Maður er
óvanur því að góð bókaútgáfufélög hafi
fé afgangs til annarra hluta, svo mann
grunar hvaða pólitískir valdhafar hafi hér
ráðið gerðum þess.
Arvakur h.f. (þ.e. Morgunblaðið) því
félagi mun ei fjárvant, þótt fyrirhugaðar
séu risaframkvæmdir hvað vélakost og
stækkun Morgunblaðsins snertir. Og
kunnáttan í að klófesta góða hluti mun ei
gleymd þar.
Frjáls fjölmiðlun, þ.e. DV. dagblað,
sem menn hugðu að hefðu ei margar milj-
ónir handbærar, en allt virðist tiltækt, ef
voldugir aðiljar vilja.
Reykjavíkurborg. Þar nær ósvífnin há-
marki sínu, er stela skal tveim miljónum
króna af eigum borgarinnar, til þess að
fjármagna fjölmiðil til að forheimska
menn. Er slíkt framferði vafalítið undan-
fari þess að láta Reykjavíkurborg kaupa
Morgunblaðshöllina fyrir of fjár og um-
skíra í ráðhús Reykjavíkur, en gefa Ár-
vakri hf. með því allt það fé, er hann þarf
204