Réttur - 01.10.1983, Qupperneq 14
VII.
Watergate-mafían verður að falla,
ef ísland á að lifa
Allt er þó það, sem hér á undan er upp-
talið: Kauprán, atvinnuleysi, svæfing og
minnkun íslenskrar þjóðar aðeins forspil
þeirrar algeru niðurlægingar og ógnar,
sem stefnt er að:
Að gera Islendinga að svo lítilmótlegri,
auömýktri þrælaþjóð að hún eigi aðeins
uni féflettingu, atvinnuleysi og neyð,
heldur sætti sig og við það að land hennar
verði í æ ríkara mæli gert að slíkri
herstöð, sem forðað var frá 1945, og
dauðadómur þarmeð kveðinn upp yfír
þjóðinni allri, ef ameríska hervaldið loks
leggur í þá atómárás, sem það hefur
dreymt um í ofmetnaði sínum síðan 1945.
Nú þegar hefur Bandaríkjaher hafist
handa um að gera Helguvík að stórolíu-
höfn fyrir sig og helvík fyrir íslendinga.
Samtímis er Alþingi íslendinga látið
kasta út hundruðum miljóna króna til að
stækka Keflavíkurflugvöll — fyrir Banda-
ríkjaher. — Það er sem hinir aumu vald-
hafar lands vors hafí gleymt því að við Is-
lendingar eigum Keflavíkurflugvöll allan
(sbr. Keflavíkursamning) og höfum rétt
til að heimta hann allan með 18 mánaða
fyrirvara.
Ef vér þörfnumst meira rýmis, þá getur
herinn vikið. Það er ekki okkar að sjá um
nægilegt rúm fyrir morðtól hans, meðan
hann enn dvelur hér. En slíkar undirlægj-
ur eru Watergateflokkarnir orðnir að
þeim finnst sjálfsagt að íslendingar hendi
út hundruðum miljóna króna, bara til
að spara hernámsliðinu fé! — og þessir
menn eru samtímis að þrengja kost ís-
lenskrar alþýðu, ræna hana ægilegar, en
nokkru sinni hefur verið fyrr gert á þess-
ari öld. — Það er dýrt að eiga ameríska
þræla að drottnum íslendinga.
Og sú undirlægjustjórn, sem enn situr
að völdum, virðist ætla að láta koma upp
herstöðvum út um allt land: radarstöðv-
um á norðvestur og norðausturhorninu,
svo engir íslendingar sleppi, ef herrar
þeirra hefja útsýmingarstríð sitt.
Það er mál að þjóð vor vakni. Það er
ekki aðeins öll lífsafkoma hennar, allt
andlegt sjálfstæði þjóðar vorrar, sem er í
hættu fyrir ágengni bandarísku herranna
og þjóna þeirra hér. Það er um sjálft líf
þjóðarinnnar að tefla.
SKÝRINGAR:
1 Sjá m.a. Rétt 1965, bls. 230, tilvitnanir úr endur-
minningum Vilhjálms Finsen.
2 Sjá Rétt 1981, bls. 206.
3 Sjá Rétt 1982, bls. 33 og áfram.
206