Réttur - 01.10.1983, Side 18
Stjórn S.U.K. 1923. Fremst: Haukur Björnsson og
Hendrik Ottósson. Aftar: Jakob Ottósson, Árni
Guðlaugsson og V.S.V.
þess og miðaði blaðið þá fyrst og fremst
við æskulýðinn. En þegar það gerist var
Haukur kominn til Vestmannaeyja og á
kaf í pólitíska starfið þar.
Pað er 1926 að Haukur flytur til Eyja.
En þar voru fyrir einhverjir bestu foringj-
ar kommúnistahreyfingarinnar á Islandi,
þeir ísleifur Högnason og Jón Rafnsson
og höfðu raunverulega forustu fyrir rót-
tækri verkalýðshreyfingu þar.
Pað er þetta þrístirni: ísleifur, Jón og
Haukur sem hefja útgáfu „Eyjablaðsins“
þann 26. sept. 1926. Er verkamannafélag-
ið „Drífandi“ útgefandinn og blaðið viku-
blað. Var Haukur strax stórvirkur í skrif-
um í blaðið, ekki síst um hreyfinguna er-
lendis, svo sem Sovétríkin og byltinguna
í Kína. Hélt hann og fyrirlestra um þessi
efni, ekki síst stóratburðina í Kína. Al-
þjóðahyggjan, eitt besta einkenni góðs
sósíalista, var alla ævi ríkur þáttur í fari
Hauks og starfi hans öllu. „Eyjablaðið“
hætti í ársbyrjun 1927, en um haustið hóf
„Vikan“ göngu sína og höfðu nú bæst í
hóp skriffinna þeir Steindór Sigurðsson
og Andrés Straumland, nýkominn frá
Ruskin College í Oxford og varð einn af
okkar bestu baráttumönnum.
Jafnaðarmann afélag Vestmannaeyja
tók við útgáfu „Vikunnar“ 24. nóv. 1928
og hélt það blað áfram til aprílmánaðar
ísleifur Högnason
210