Réttur - 01.10.1983, Síða 20
Fulltrúar á 3. þingi S.U.J. á Siglufirði
Albertsson læknir hafði saumað saman
þrjár sprungur á höfuðleðrinu, er lögregl-
an veitti mér 9. nóv. 1933. — Þær voru
a.m.k. tvær „rauðar“ hárgreiðslustofurn-
ar í Reykjavík um þessar mundir, hina
rak Kristín Guðmundsdóttir, kona Hall-
bjarnar Halldórssonar, ritstjóra Alþýðu-
blaðsins, og var heimili þeirra hjóna mikil
miðstöð róttækustu skálda og rithöfunda,
allt frá því „Mjólkurfélag heilagra“ starf-
aði þar með síðar frægustu skáldum lands
— og þar til Unuhús fór að taka við því
hlutverki. En hárgreiðslustofa Kristínar
hét „Hollywood“ og því gekk þessi stór-
merka og ágæta kona alla ævi undir nafn-
inu „Kristín í Hollywood“ í félaga hóp.
En hverfum nú frá hárgreiðslu til hat-
ramra átaka stéttabaráttunnar.
Þau Marci og Haukur settust að á
Bergstaðastræti 72, leigðu hús Júlíönu
listmálara, og á heimili þeirra, í rúmgóðri
stofu listakonunnar, er Kommúnista-
Ilokkur íslands stofnaður 30. nóv. - 1.
des. 1930.
Haukur verður auðvitað frá upphafi
einn aðalbaráttumaður þess flokks, hlaut
það veigamikla starf í miðstjórninni að
vera formaður skipulagsnefndar, — og
þótt skýrslur hans væru góðar, þá var bar-
áttan svo hörð að vart var mánuðurinn
liðinn, áður en Haukur þann 3. janúar
1931 var ásamt þrem öðrum félögum
(Guðjóni Ben., Þorsteini Péturssyni og
Magnúsi Þorvarðarsyni) settur í fangelsi
vegna forustu í baráttu verkamanna fyrir
atvinnubótum. En vegna gífurlegrar þátt-
212