Réttur - 01.10.1983, Blaðsíða 25
stakir í sinni röð, svo ólíkir þeim þurru
stjórnmálafundum, sem enn tíðkuðust
þá hér á landi.
Flokkurinn hélt t.d. tvo fndi í Gamla
Bíói fyrir kosningarnar og Haukur bauð
kjósendum ekki bara góða ræðumenn.
Hann lét og útbúa skuggamyndir úr kosn-
inga-myndabók Helga Hálfdánarsonar
„Heyr mitt ljúfasta lag“ og sýna — og Jó-
hanncs úr Kötlum las upp nýort baráttu-
ljóð. Og aðgangurinn var seldur að kosn-
ingafundi, — á 25 aura, — og húsið tví-
vegis yfirfullt.
Kosningadagsnóttina vorum við margir
heima hjá Hauki og Marci í Bergstaða-
stræti, því við höfðum lokað kosninga-
skrifstofunni, vorum ekki alltof bjartsýnir
á sigur, því atkvæðatala flokksins varð að
vaxa úr 1100 (1934) upp í mikið yfir 2000,
ef sigur átti að nást. Undir morguninn var
ljóst, áður en utanbæjaratkvæði voru tal-
in að við höfðum sigrað. Haukur sagðist
ekki trúa því, hann hafði verið í barna-
skólaportinu allan daginn og næstum
gleymt að kjósa, og rök hans voru: „Það
voru ekkert nema E-listabílar“ (íhaldið
var með E-lista), við vorum með D — og
enga bíla! En það var mikill fögnuður, er
allt varð ljóst, og K.F.Í. hafði m.a.s.
fengið 5. þm. Reykvíkinga, þeir voru þá
sex, yfir 2700 atkvæði — og alls 3 komm-
únista inn á Alþingi íslendinga.
Við Haukur unnum saman daglega
mestallan þann tíma, er K.F.Í. starfaði.
Ég kynntist honum því ekki aðeins sem
góðum vin og framúrskarandi félaga,
heldur og hans sjaldgæfu mannkostum:
skipulagsgáfunni miklu, áróðursmættin-
um, snarræðinu og fádæma starfsþreki.
Lúðvík Jósepsson hefur í minningar-
greininni í Pjóðviljanum lýst vel síðari
hluta ævi hans, þar sem ekki hvað síst
reyndi á fjármálavit hans — og þess var
vissulega alltaf mikil þörf í hreyfingu
okkar, bæði fyrr og nú.
Með Hauki Björnssyni er kvaddur einn
atorkusamasti félaginn á þrem hörðustu
baráttu-áratugum Alþýðuflokksins,
Kommúnistaflokksins og Sósíalista-
flokksins (1920-50), félagi, sem ætíð var
í fremstu víglínu, er tekist var á við aftur-
hald þess tíma.
Marci eru sendar innilegustu samúðar-
kveðjur og þakkir fyrir allt, sem hún og
var okkar hreyfingu.
EINAR OLGEIRSSON
Haukur á efri árum
217