Réttur - 01.10.1983, Page 27
Phan Hoi
látinn
Mér voru að berast þær fréttir að okkar
góði vinur og félagi Phan Hoi væri látinn.
Hann mun hafa látist í Hanoi þann 8. des-
ember s.l. Hoi veiktist af illkynja sjúk-
dómi meðan hann var í Osló og gekkst
undir aðgerð þar í des. ’80. Þessi sjúk-
dómur mun nú hafa valdið dauða hans
fyrir aldur fram.
Félagi Hoi var fæddur í Suður-Víet-
nam. Hann hóf feril sinn í þjóðfrelsisbar-
áttunni ungur að árum, fyrst í stríðinu
gegn frönsku nýlenduherrunum og síðar
gegn bandarísku heimsvaldastefnunni.
I kringum 1. des. 1971 kom hann fyrst
til íslands í boði fjögurra félagasamtaka.
í þann mund var Bráðabirgðabyltingar-
stjórnin í SVN að setja á laggirnar upp-
lýsingaskrifstofu í Osló og veitti Phan Hoi
henni forstöðu. Heimsókn hans hingað
varð kveikjan að stofnun Víetnamnefnd-
arinnar á íslandi, samstarfi 15 félagasam-
taka, stjórnmálaflokka, kvenna- og náms-
mannasamtaka.
Phan Hoi var lífæðin í því sambandi
sem íslendingar höfðu við þjóðfrelsisbar-
áttuna í Víetnam á þeim árum sem úrslit
hennar réðust. Hvar sem hann kom á
Norðurlöndum laðaði hann fólk að sér
með hreinskilni sinni og hlýju. Hann var
ekki góður málamaður á norsku né
ensku, en framganga þessa hugsjóna-
manns, þekking hans á sögu og aðstæðum
sinnar þjóðar, baráttuvilji hans og þrek
vógu margfalt upp tungumálaörðugleik-
ana.
Eftir að innrásarherir Bandaríkjanna
höfðu verið lagðir að velli og leppstjórn
þeirra í Saigon verið steypt var Phan Hoi
kallaður til starfa í utanríkisráðuneytinu
í Hanoi. Þegar endursameining landsins
hafði átt sér stað kom hann á ný til starfa
í Osló, í sendiráði Víetnam fyrir Noreg,
Danmörku og ísland.
í apríl 1981 kom Phan Hoi til íslands á
ný, þá í boði Vináttufélags íslands og
Víetnam. Á ársafmæli þess félags 3. maí
var hann á fundi á Hótel Borg gerður að
heiðursfélaga VÍV. í þeirri heimsókn átti
hann fundi með framámönnum í opinber-
um stöðum, en sérstaklega minnistæð er
heimsókn hans til Magnúsar Kjartansson-
ar, fyrrum ritstjóra, alþingismanns og
ráðherra. Phan Hoi afhenti Magnúsi við
það tækifæri þá einu orðu sem hann féllst
á að þiggja á sínum ferli, vináttuorðu
víetnömsku þjóðarinnar.
í þeim miklu erfiðleikum sem eftir-
leikur stríðsins hefur verið, sáu Víetnam-
ar sig tilneydda til að draga saman seglin
í utanríkisþjónustu. Sendiráðinu í Osló
ásamt mörgum öðrum var lokað. í lok
júní hélt Phan Hoi heimleiðis. Síðasta
kvöldið í Osló hringdi hann til mín og bað
fyrir innilegar kveðjur til vina og félaga á
íslandi. Pað var greinilegt að aðskilnað-
urinn var erfiður en landið hans kallaði
og heima beið hans kona og tvær upp-
komnar dætur sem hann hafði lítið séð af
á löngum og ströngum árum baráttunnar.
Phan Hoi auðnaðist aðeins rúmt ár lífs
eftir heimkomuna. Hann var kominn á
eftirlaun en lét þó ekki sitt eftir liggja í
hlutastarfi allt fram á síðustu stund.
Við höfum misst góðan vin og baráttu-
félaga.
Phan Hoi er allur, en andi hans lifir.
Blessuð sé minning hans.
SVEINN RÚNAR HAUKSSON
219