Réttur - 01.10.1983, Síða 30
Af hverju hækkar
íslenska valdaklíkan
dollarann, ef að kaup
launafólks hækkar?
Hin eðlilega afleiðing af kauphækkun verkamanna og annars launafólks væri
að yfirstéttin skipulegði atvinnulífíð skynsamlegar, lélegustu atvinnurekendurnir
færu máske á hausinn, en þjóðfélagið sem heild yrði betur rekið á eftir.
En af hverju svara atvinnurekndur allt-
af síðan 1950, kauphækkun verkamanna
með hækkun dollarans? Ástæðurnar eru
að þeir græða á því sem nú skal greina:
1. Valdaklíkan á íslandi lítur á verð-
bólguna sem aðalgróðalind sína: með
hækkun dollarans lækkar hún kaupgjald
verkalýðsins með því að auka verðbólg-
una. Og þannig rýrir hún og verðgildi
allra sjóða verkalýðsins, t.d. atvinnuleys-
istryggingasjóðs.
2. Valdaklíkan sker í krafti dýrtíðar-
innar niður verðgildi lána sinna í ríkis-
bönkunum.
3. Verðmæti eigna valdaklíkunnar
margfaldast, svo og verðmæti erlendra
peningaeigna braskaranna.
Ef það á að stöðva dýrtíðina á íslandi
þá á það að gerast á kostnað valdaklík-
unnar, ekki verkalýðsins.
Orsökin til þess að valdastéttin reynir
nú að stöðva verðbólguna, eingöngu á
kostnað alls launafólks, er að valdastéttin
var að setja ísland á hausinn með því að
hafa með sífelldum dollarahækkunum í
30 ár, — samkvæmt bandarískum ráð-
leggingum — hækkað dollaralánin í
Bandaríkjunum og annarsstaðar svo að
ísland var orðið eitt skuldugasta land
heimsins — og Kaninn, yfirherra valda-
klíkunnar, sagði stopp.
En gerspillt yfirstéttin íslenska hótar
nú að margfalda dollarann í gildi, ef
verkalýðurinn unir því ekki að láta stela
af sér kaupgjaldinu — með lögum! — Og
af hverju hótar yfirstéttin þessu, sbr. út-
reikninga Vinnuveitendasambandsins?
Af því þessir herrar, með örfáum undan-
tekningum, eru ófærir um að stjórna at-
vinnulífi íslands og hagnýta auðæfi þess.
Kunna ekki að skipuleggja atvinnurekst-
ur af viti, eyða hundruðum miljóna króna
í vitlausar fjárfestingar, henda dýrmætum
hráefnum í sjóinn og láta aðra stórkost-
lega möguleika til framleiðslu innlends
efnis ónotaða vegna þekkingarleysis síns,
— með öðrum orðum: af því þessi valda-
klíka braskara er ófær um að stjórna ís-
222