Réttur - 01.10.1983, Page 32
EINAR OLGEIRSSON:
Getum vér sigrað
í þjóðfrelsisbaráttunni
„Frelsi þarf táps móti tæling og lygð,
ei trúgirni á Iandsins féndur. “
EINAR BENEDIKTSSON f „ALDAMÓT“
nýju?
ísland hefur nú verið hertekið1 og þjóðin kúguð2 í 42 ár af bandarísku hervaldi
og auðvaldi, miskunnarlausustu og grimmustu mafíu-stétt jarðarinnar eins og
múgmorðin í Hiroshima,, Nagasaki og Víetnam best sýna.
Bandarískt hervald tók ísland herskildi 1941 í krafti hótana og úrslitakosta
breska hersins, er hafði skuldbundið sig til að afhenda Bandaríkjunum landið til
framtíðaryfirráða. — Málamyndasamningurinn, er ríkisstjórn íslands var kúguð
til að gera í júnílok 1941 með 24 klukkutíma úrslitakostum (frásögn Hermanns
Jónassonar forsætisráðherra) var síðan svikinn af Bandaríkjastjórn 1945, er hún
neitaði að fara með herinn af landi burt — eins og „samningurinn“ ákvað — og
Bandaríkjastjórn heimtaði 1. okt. 1945 þrjár herstöðvar — stóra hluta af ís-
lenskri grund — undir alger amerísk yfirráð í 99 ár. Þar með sýndi Bandaríkja-
stjórn að frá upphafi ætlaði hún sér Island sem bandaríska herstöð, — jafnvel
gegn Evrópu, ef rauð yrði. Nato var ekki til og hefur aldrei verið nema gríma
Kanans gagnvart íslendingum, af því kynslóðin, er stofnaði lýðveldið 1944 var
treg í taumi, er um afsal lands og sjálfstæðis var að ræða, — svo treg að Kaninn
varð að láta sér nægja Keflavíkursamninginn, uns hann hertók landið aftur 1951.
En árin 1947-50 voru notuð til að festa í sessi bandaríska drottnun yfir efna-
hagslífi íslendinga með Marshallsamningnum, stórlækka kaup verkamanna með
því að hækka dollarinn úr rúmum 6 krónum í rúmar 16 og fyrirskipa fjármála-
valdinu á íslandi að beita þeirri arðránsaðferð næstu áratugi, — og koma á at-
vinnuleysi 1950 með því að svifta íslendinga frelsi til að byggja sér íbúðarhús.
Bandaríska auðvaldið ætlaði líka á þessum árum að koma sér upp einkaauð-
valdi á íslandi, er verið gæti tryggur varðhundur þess, en það tókst ekki þá. Sem-
entsverksmiðjan og áburðarverksmiðjan urðu ríkisverksmiðjur. Enn var yfirstétt
íslands ekki svínbeygö undir amerískt vald.
224