Réttur - 01.10.1983, Page 37
Skúli Thoroddsen
Bjöm Jónsson
Hver verða viðbrögð bandarískra vald-
hafa og hvernig verðum vér að mæta
þeim?
Situr herinn kyrr, hvað sem þjóðin
segir, eins og 1945? Setur Bandaríkja-
stjórn bann á innflutning íslensks fiskjar
eins og Bretar, „bandamenn“ vorir gerðu
1953, er fiskveiðilögsagan var færð út í 4
mílur? Og fleiri aðferðir eru til fyrir vold-
ugustu þjóð veraldar, ef hún hlýðir ill-
mennum þeim og glæfralýð, er ræður þar
ríkjum nú, til að reyna að kúga eina fá-
mennustu þjóð heims.
Kryfjum þetta mál til mergjar.
Frelsisbarátta vor er ekki háð gegn
þeirri miklu bandarísku þjóð, sem gefið
hefur heiminum einhverja bestu stjórn-
málamenn sögunnar, slíka menn sem
Abraham Lincoln og Franklin D. Roose-
velt.
Hún er háð gegn þeirri glæfraklíku, —
„the military-industrial complex“, —
þeirri samsærissamsteypu voldugustu
vopnaframleiðenda og hershöfðingja í
þjónustu þeirra, — sem sjálfur Eisenhow-
er forseti varaði þjóð sína við í kveðju-
ræðu sinni. Pessi glæpaklíka er að nota
bandarísku þjóðina til að teygja út valda-
klær sínar um víða veröld og stefnir sam-
viskulaus að því að leiða þjóð sína út í
hræðilegustu styrjöld, sem samkvæmt
viðurkenningu vara-hermálaráðherra
hennar gæti tortímt allt að 95% þjóðar-
innar — og þá svipað hjá öðrum stríðs-
þjóðum. Og til þess að ná þessu þokka-
lega takmarki leggur valdaklíkan slík her-
útgjöld á þjóðina, að fátækt almúgans vex
í sífellu hjá þessari ríkustu þjóð heims.
En glæfraklíkan hefur vopn til að þrí-
drepa hvert mannsbarn á jörðinni.
229