Réttur - 01.10.1983, Qupperneq 39
Pað er sterk andúð gegn þessari klíku
og helstefnu hennar í sjálfum Bandaríkj-
unum. Pað verkfæri klíkunnar, sem nú
situr þar í valdastól, er aðeins kjörið af
um fjórðungi kosningabærra manna.
Porra vitrustu manna Bandaríkjanna
blöskra glæfrabrögðin. Það er engin
vissa fyrir að til lengdar verði þar við völd
slíkir menn, sem að fyrirmynd Hitlers
ætla að fórna lífi tugmilljóna amerískra
ungmenna til þess að reyna að „útrýma
kommúnismanum". Þjóðin þar vestra
man enn Vietnam — og á hverju ári fæð-
ast æ fleiri vansköpuð börn þeirra her-
manna, er voru látnir sá eitrinu yfir
skóga, ekrur og mannfólk í Vietnam —
með hræðilegum afleiðingum. Eigi aðeins
kirkjuþing og kommúnistar andmæla
fyrirætlunum valdaklíkunnar, borgaralegir
stjórnmálamenn innan þings sem utan
rísa og gegn glæfrunum, jafnt Fulbíight5
sem Kennedy.
Það sem allt veltur á —jafnt líf þjóðar
vorrar sem mannkyns alls, — er að hindra
að meðan þessi glæfraklíka enn er við
völd í Bandaríkjunum hefji hún þá
styrjöld, er yrði líklega hin síðasta í sögu
mannkynsins, — af því mannkyn yrði að
henni lokinni ei lengur til. — Og það er
aðeins eitt, sem heldur aftur af þessari
klíku að hefja stríð: hún er ekki viss um
að vinna það, — það gæti eins orðið
sjálfsmorð allra. Og það er aðeins eitt
sem hún óttast í því efni: að Sovétríkin
væru jafnsterk henni, er hún réðist á þau.
Glæpamenn vilja ránsfeng — ekki dauða-
dóm.
„Hernaðar- og stóriðju-klíka“ amer-
ísku milljónamæringanna eru jafnt fjend-
ur bandarísku þjóðarinnar sem okkar.
Þeir Bandaríkjamenn sem á móti henni
berjast eru óbeinir bandamenn vorir í
frelsisbaráttunni — og það þó þeir þekki
vart Island. En það gera þeir þó sumir.
W. Fulbright, löngum formaður utanrík-
ismálanefndar öldungadeildar Banda-
ríkjaþings, kom hingað heim og hélt hér
ágætan fyrirlestur í Háskólanum fyrir all-
mörgum árum.
Vér megum ekki gleyma því íslending-
ar að einnig á dögum hins danska kúgun-
arvalds áttum vér bandamenn í Dan-
mörku sem studdu oss drengilega í þjóð-
frelsisbaráttunni, menn eins og Rasmus
Kr. Rask og Balthazar Christensen.6
IV
Það veltur allt á því að halda
hjartanu heitu og
huganum heiðum
En hvað skal gera, ef vér íslendingar
krefjumst valdsins yfir landi voru, náum
meirihluta á Alþingi og myndum ríkis-
stjórn þjóðfrelsis, meðan stríðsgróðaklík-
an enn hefur völdin í Washington og
lætur her sinn sitja hér kyrran — og
undirbýr aðgerðir til þess að auðmjúk þý
hennar kæmust hér til valda á ný?
Ég var mjög lengi trúaður á að forseti
Bandaríkjanna myndi virða það, að ís-
land segði upp „varnarsamningum“ og
færi úr Nato. Og ég held enn að forsetar
eins og Eisenhower sem varað hafði við
þeirri hættu sem lýðræði Bandaríkjanna
stafaði af „hernaðar- og stóriðju-klík-
unni“ og John Kennedy sem tók við af
honum hefðu gert það. Þeir létu ekki
herforingjana fá að tala að vild í nafni
ríkisins, enda mun líklega CIA hafa séð
um að myrða Kennedy.
En þegar völd hernaðar- og stóriðju-
mafíunnar eru orðin slík sem nú og „fíg-
úrur“ af tagi Reagans sestir í forsetastól,
231