Réttur - 01.10.1983, Síða 41
„Slíkur er böðull þinn, hann, sem þú valdir til herra“
„Helsprengjuregn verður gjöf hans til barnanna þinna(í
(Varnaðarorð Jakobínu Sigurðardóttur í „Morgunljóð“ 1960)
er fögnuðu slíku framferði, að villa um
fyrir þjóðinni og ná völdum í nýjum
„kosningum“ undir bandarískri vernd. —
F*að er ómögulegt að ræða allar þær að-
ferðir sem voldug, vopnuð samviskulaus
valdaklíka getur notað gagnvart varnar-
lausri smáþjóð, jafnvel þó hún gripi ekki
til þeirra ráða, er beitt var með hennar
aðstoð í Guatemala 1954 eða Chile 1973.
En líklegt er að hvaða ráðum: blekk-
ingum og ofbeldi, sem bandaríska valda-
klíkan beitti, — þá myndi íslensk þjóð, ef
hún í eitt sinn hefði af sér rifið ameríska
álagahaminn, hata kúgara sinn því heitar
í hjarta sínu, því lengur sem hún yrði að
búa við helsi hans. Alþýðan í Chile sýnir
oss að 10 ára fasismi fær ekki drepið
kjarkinn úr þjóð, sem vill fá aftur frelsi
sitt.
En meðan hjarta þjóðar vorrar enn er
heitt og hugur hennar aftur heiður, þá er
lifsvon enn, — meðan friðarhreyfing
meðal mannkynsins eflist og varnarmátt-
ur Sovétþjóðanna helst svo að bandaríska
„hernaðar- og stóriðju-klíkan“ þori ekki
í allsherjar-atómstríð, — þá á mannkynið
og vér þar með sér enn lífs- og framtíðar
von.
Og þá gæti jafnvel það kraftaverk gerst
að friðarhreyfing mannkynsins efldist svo
um gervalla jörð að meira að segja sjálf
bandaríska þjóðin risi upp gegn „hern-
aðar- og stóriðju-klíkunni", sem er að
leiða hana og heiminn gervallan í glötun,
233