Réttur - 01.10.1983, Qupperneq 45
in í sögunni nær fram að ca. 1931. Anna
Seghers náði vel tii alþýðunnar með þess-
ari skáldsögu, enda hefur hver útgáfan af
henni rekið aðra.
Eftir valdatöku Hitlers voru bækur
hennar bannaðar og hún flúði til
Frakklands. Þar birtust ýmsar af frægustu
bókum hennar, svo sem „Der Weg durch
den Februar“ (,,Febrúargangan“), sem
fjallar um febrúaruppreisn verkamanna í
Vín 1934. Frægust varð hún af skáldsög-
unni „Das siebte Kreuz“ („Sjöundi
Krossinn“), sem kom út í Mexico 1942-3,
en þangað hafði hún orðið að flýja undan
herjum Hitlers er þeir tóku Vestur-Evrópu
— og eyðileggja áður handritið að bók-
inni, en af tilviljun komst afrit, er hún
sendi til New York á leiðarenda. í Mex-
ico starfaði hún mikið með útlögum eins
og blaðamanninum frægasta: Egon Erwin
Kisch.
Árið 1947 sneri hún heim og settist að
í því landi, sem varð Þýska alþýðulýð-
veldið (DDR). Var hún mjög dáð þar,
varð formaður rithöfundasambandsins og
naut hvarvetna mikils heiðurs og ástar.
Reit hún þar margar nýjar skáldsögur og
hafa skáldrit hennar, aðeins hjá útgáfu-
fyrirtækinu Aufbau, komið út í yfir þrem
miljónum eintaka.
Að því sem mér er best kunnugt hefur
lítið verið þýtt eftir þessa ágætu skáld-
konu á íslensku. Björn Fransson þýddi
nokkra kafla úr „Febrúargangan“ í
Rauða penna 1935 og gefinn var út um
sama leyti í bæklingi „Síðasta ferð Kol-
oman Wallisch“ en svo hét einn af leið-
togum verkamanna í Vínaruppreisninni,
sem reyndi að bjarga herdeild verka-
manna eftir ósigurinn, en lét sjálfur lífið.
E.O.
237