Réttur - 01.10.1985, Blaðsíða 35
Þættir úr baráttusögu
alþýðunnar í Ólafsfirði
Svo sem margir máske muna bað „Réttur“ menn um það nýlega að senda sér
frásagnir af baráttu alþýðu og starfsemi hennar og ekki hvað síst myndir með, ef
tH væru. Varð ágætur félagi á Akureyri, Steingrímur Eggertsson, við þeirri
beiöni svo sem sást í 3. hefti s.l.
Nú höfum við fyrir tilstilli Sigursveins D. Kristinssonar fengið tækifæri til að
birta frásögn frá starfí Verkalýðsfélagsins í Ólafsfírði 1933-1942 og um Sósíal-
istafélag Ólafsfjarðar 1938-1940 og 1944-1945 svo og ræðu Sigursveins 1. maí
1945. Birtast þessir þættir hér á eftir og myndir frá þessum tíma.
Ennfremur er til ágætt safn heimilda um baráttu Ólafsfírðinga í sambandi við
nýsköpun atvinnulífsins á árunum 1944-1947 og vonumst við til að síðar verði úr
því ágæta safni unnið og birt. En nú skal birt það sem beinast og best liggur við.
Verkamannafélag og
þöntunarfélag
Björn Þorsteinsson frá Hólkoti í Ólafs-
brði, ásamt syni sínum Jóni, f. 1887 — d.
sept. 1920, var forgöngumaður um
stofnun verkamanna- og pöntunarfélags
' Ólafsfirði árið 1917.
Starfsemi þessa félags mun hafa fallið
niður eftir að Björn lést haustið 1920.
^erklýðsfélag Ólafsfjarðar
A tímum kreppunnar miklu eftir 1930,
Var í Ólafsfirði eins og flestum öðrum
sjavarplássum í landinu, ekki um að ræða
aðra atvinnu en sjómennsku. „Land-
menn“, sem gerðu að afla bátsins í landi
höfðu 1 hlut hver eins og hásetar á
hátum. Hlutaskiptin voru mjög mikilvæg.
Björn Þorsteinsson ásamt Jóni syni sínum.