Réttur - 01.01.1975, Page 19
við þjóðfélagsgagnrýni og í svarinu tengir
hann skemmtilega saman söguna og samtím-
ann. Þar segir:
,,Menn eru einfaldlega hræddir við að blakað
verði við þe'rra eigin stöðu, Allt það sem er fé-
lagsleg gagnrýni, er kæft niður með alls konar
þrasi, það er kallað tíska frá Svíþjóð og sagt um
stúdenta að þeir þekki ekki til vinnandi fólks.
Stúdentar hafa haldið uppi félagslegri gagn-
rýni og I rauninni haldið uppi merki Jóns Sig-
urðssonar og Skúla Thoroddsen, með því að líta
á þjóðfélagsgerðina taka hana til umræðu og gagn-
rýna það sem aflaga fer."1'
Það er vissulega þarft verk, þegar reynt
er að kæfa alla þjóðfélagsgagnrýni og út-
hýsa henni í ríkisfjölmiðlum, að draga fram
þann ríka þátt sem þjóðfélagsgagnrýnin var í
lífi og starfi leiðtoga okkar í sjálfstæðisbar-
áttunni. I ævisögu Skúla hefur höfundi ein-
mitt tekist að ná vel fram þessum þætti í
stjórnmálábaráttu hans og hann bregður upp
mörgum dæmum um hina skeleggu gagn-
rýni Skúla einkum á embættismannavaldið.
HVER VAR ÞESSI
SKÚLI THORODDSEN?
Meira en helmingur landsmanna í dag
hefur á sínum æviferli ekki hlotið þann vafa-
sama heiður að teljast þegnar Danakonungs
(þ.e. jæir sem fæddir eru eftir 17. júní 1944)
og í augum þeirra renna kempurnar frá tím-
um sjálfstæðisbaráttunnar gegn Dönum sam-
an. Eldri kynslóðin hefur hins vegar mótaðri
mynd af þessu. I lokakafla ævisögunnar skýr-
ir höfundur mjög vel viðhorf Skúla og bar-
áttuaðferðir. Þar segir:
„Nútímamönnum getur virst sem þversagnar gæti
í þe'rri afstöðu Skúla Thoroddsen að halda fram
frekustu jafnréttiskröfum en vilja jafnframt efla
borgaralegt skipulag, þar sem slík félagsskipan
með framleiðsluháttum sínum og eignarhaldi býður
óhjákvæmilega heim nýjum félagslegum afstæð-
um, stéttum auðmanna og öreiga, og misskiptingu
Jón Guðnason sagnfræðingur
auðæfanna. Hvað þetta snert'r, er nauðsynlegt að
hafa þróunarstig íslensks þjóðfélags i huga. And-
stæður þær, sem kapítalisminn getur af sér,
komu fyrst upp að ráði, er Skúli var tekinn að
ganga síðasta skeiðið, en skoðun hans á mætti
og áhrifum auðs og auðræðis er ber, því að hún
birtist I mörgum ummælum hans, og hafa ým s
þeirra verið tilfærð hér að framan.
Þjóðfélagsleg skoðunaraðferð Skúla Thoroddsens
var I marxískum anda, mótuð af sögulegri efnis-
hyggju og díalektískum viðhorfum. Hin sögulega
framvinda ákvarðaðist af þjóðfélagsháttum og
framleiðsluháttum, en maðurinn og stéttirnar voru
afkvæmi umhverfis og samfélags. Hann skoðaði
því þjóðfélagið og fyrirbrigði þess I Ijósi stétta-
baráttunnar, þeirrar streitu og mótsagna, sem ólíkur
efnahagur, félagsleg staða og menntun vekja upp.
Sósíalískur skoðunarháttur var fátiður á þessum
árum á Islandi, en hann kemur einkum fram hjá
skáldunum Einari Benediktssyni, Gesti Pálssyni,
Stephani G. Stephanssyni og Þorsteini Erlingssyni
19