Réttur - 01.01.1975, Blaðsíða 35
STEPHAN G. STEPHANSSON:
Gert um varnarlausa verkamenn, skotna niður
áleiðis með ávarp til Zarsins
i.
Það stóð eins og skotspónn með berskjölduð
brjóst
gegn byssunum spentum, er atlagan hófst.
Það brást ekki dyggð fyrir brottflóttans grið,
það bcenheyrslulausa, það einstceða lið —
þeir kappar frá Hungraðra-hreysi,
þcer hetjur frá Réttinda-leysi!
Og svo reið af skruggan og skotin
sem skóg lýstur elding — svo breyttust þau
mögn
í hræreyk og helkyrðar þögn —
svo lyftist sá lognmökkur ögn,
sem líkblæja af líkbörum flotin —
svo glórði í þau hundruð sem höfðu þar
velst —
svo hvinu við óp þess af sársatika kvelst —
og andartaks þögnin var þrotin.
Þar stóð í hertýgjum lífvörður lands
hjá leyfum af fylking hins vopnlausa manns,
við likköst og lifandi brotin.
Svo blasti við blæðandi fönnin,
í unnvörpum ungur og roskinn
og ellinnar vanmegn og þroskinn,
og fallinn lá bróðir um bróður,
og barnið við faðm sinnar móður.
— Hún roðnaði rússneska fönnin!
Þar bænræknin böðuð í tárum,
lá blóðrisa, dáin úr sárum.
Það friðartákn, frelsunarlindin
sem fólkinu vísaði á réttlætis dyr,
stóð flekkað þess blóði — sem fyr —
þau krossmark og keisara-myndin.
II.
Afreks einvalalið,
Rússlands útvöldu! Þið
hvílist verkalok við,
í framtíðarsigrinum sælir!
Hvert samvisku-innræti sanngimi trútt,
hver sjáandi hugur, hvert mannshjarta prútt,
allt einróma máli ykkar mælir —
og lofs-tírinn sá
sem að lýð-hetjur fá
hlotnast ykkur ei á
því guðspjalli er trúgjarna tælir.
Hann hangir svo langt uppi í aðfara öld,
að aldrei mun ná til að bletta þann skjöld
sú óvizka er óskilið hælir.
Enn getur víst skynleysið skaðað og flengt,
og skotið um fjölmenni og einstakling hengt.
En sannindi hopa ei að heldur.
35