Réttur


Réttur - 01.01.1976, Blaðsíða 17

Réttur - 01.01.1976, Blaðsíða 17
sem ódýrt vinnuafl til að vinna við það sama og þetta fólk er að vinna. Eg vinn t.d. við það að fara í hús og hugsa um gamalt fólk, oft ákaflega illa farið. Við verðum að vera allt, annast hjúkrunarstörfin, heimilisstörfin, ræstingu o.s.frv. Þarna getum við leyst dýrt vinnuafl af hólmi. T.d. á Kleppi og á fávita- hælunum þá er megnið af hjúkruninni leyst með Sóknarkonum og þær eru auðvitað á þessu lága kaupi. Konur sem vinna þessi störf hafa dálitla sérstöðu, að þær hafa bara sitt mánaðarkaup. Konur sem vinna í fiski hafa kannski bónus á fiskinn og þess háttar. Það hafa þó nokkr- ar konur komið til mín úr mínu félagi upp á síðkastið. Þær hafa sagt mér, að það sé alveg sama hvernig þær reyni; þær fá ekki endana til þess að ná saman. Þetta gefur náttúrlega alveg auga leið með þessar tekjur. Þetta er ekki hægt og það ættu allir að sjá. Það er hreint ekki hægt að lifa af þessu, því að margar þessara kvenna eru einar að vinna fyrir sér. Gudmundur: Konan er alltaf að verða stærri og stærri hluti af þessum Jægst laun- uðu stéttum; konurnar eru þetta ódýra vinnu- afl. Kaupmáttur lieimilanna nú er almennt meiri, þrátt fyrir kjaraskerðingu, vegna þess að meiri hluti giftra kvenna er kominn út á vinnumarkaðinn. Löggjafarvaldið er sífellt að heimta svo og svo há próf inn í allar hugs- anlegar starfsgreinar, m.a. hjúkrunar- og fóstrunám. Þetta lokar fleiri og fleiri mörru- leikum fyrir ungu fólki, sér í lagi kvenfólki, enda er afleiðingin sú að konur eru að verða stærri og stærri hluti af verkafólkinu. Verka- mönnum fækkar en verkakonum fjölgar og ungar stúlkur sem ekki hafa farið í neitt framhaldsnám; þeim er bókstaflega hrint frá og þar er aldeilis ekki hæfnissjónarmið sem ræður. VERKALÝÐS- HREYFINGIN OG VINSTRI STJÓRNIR Réttur: Við höfum aðeins minnst á það, hvernig ríkisvaldið grípur inn í kjaramálin og eyðir árangrinum með gengisfellingum. Nú hefur á eftirstríðsárunum þrívegis verið við völd ríkisstjórn sem verkalýðsflokkar hafa átt sæti í. Þá hefur verið óskað eftir góðu samstarfi við verkalýðssamtökin. Reynslan af þessum stjórnum hefur verið æði misjöfn eftir málaflokkum, en um kjara- málin má segja að af minnsta kosti tveimur stjórnum hafi reynslan verið verkalýðshreyf- ingunni hagstæð. Hafið þið velt því fyrir ykkur, hvernig hreyfingin getur tekið þátt í því að stjórna þjóðfélaginu með slíkri ríkis- stjórn? Sigurður: Ég held að það hefði verið á- kveðinn stuðningur fyrir vinstri stjórnina síð- ustu, ef Alþýðusambandið hefði ályktað skel- eggt í efnahagsmálunum 1972 eða um aðra málaflokka. Ég held að verkalýðshreyfingin noti alls ekki tækifærið, þegar flokkar sem vilja vinna henni í hag ná völdum, — þá sé verkalýðshreyfingin alls ekki nógu virk að álykta og lýsa yfir stuðningi við þá mála- flokka sem ríkisstjórnin vill koma fram og eru verkalýðnum í hag. Réttur: Eða gera kröfur um breytingar á þjóðfélaginu, sem eru henni í hag? Sigurður: Hún er alls ekki nógu virk í þeim efnum. Hreyfingin á að styðja áform slíkra stjórna. Aðalheiður: Mér finnst nú eiginlega verka- 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.